Category: social

  • Komdu

    Albert: „Komdu!“ Pabbi: „En ég er ennþá að borða!“ A: „Geymdu það!“ P: „Hvert á ég að koma?“ A: „Með mér!“ P: „Ok“ A: *leiðir pabba upp á efri hæð* P: „Og hvað..?“ A: „FYRSTI APRÍL!!!“

  • Dissa

  • Stundum róar Sandra sig með því að teikna eitthvað…

  • Aftan

    Í bíl. Albert: „…í framsæti og líka í … ? hérna, sætið fyrir aftan“ Pabbi: „Það heitir aftursæti“ A: „AFTURsæti? Af hverju heitir það aftURsæti? Er það aftur og aftur? NEI! Það er FYRIR AFTAN! Það á að heita AFTANsæti“

  • Úti að labba

    Úti að labba með Albert á hjóli og Húgó í taumi Það gekk ekki aaaaalveg eins og í sögu og ég var aðeins að byrja að pirrast þegar Albert stoppaði, leit á mig, brosti og sagði: „Mér finnst gaman í lífinu mínu!” Ég held ég hafi fengið eitthvað í augað

  • Draumar og skrýmsli

    Albert rifjar upp ljótan draum fyrir háttinn, en nær þó að sofna frekar hratt Pabbi hinkrar aðeins lengur en þarf og rís svo ofurvarlega upp Albert: „Þú skemmdir drauminn minn … við vorum falleg fjölskylda, en svo varst þú með læti og ég vaknaði“ A: „Það voru skrýmsli“ P: „Veistu, þú getur stjórnað því hvað…

  • I too … am mouse!

  • Listaskóli

    Pabbi: „Hvenær er listaskóli?“ Albert: „Þau sögðu allavegana miðvikudagur“ „Hvaða dagur er í dag?“ P: „Þriðjudagur. En ef það er þriðjudagur í dag, hvenær er þá miðvikudagur?“ A: „Pabbi! Veistu það ekki? Sko, ef þú veist ekki, þá…“ „sunnudagur mánudagur þriðjudagur…“

  • 14 ár

    Eftir 14 ár hjá tannlæknastofunni Tanngo ehf. var ég að fatta orðaleikinn

  • Uppáhalds lagið

    Allir hlusta á tónlist saman Sandra: „Ómægad! Ég var alltaf að hlusta á þetta! Þetta var uppáhalds lagið mitt þegar ég var svona fjögurra eða fimm ára“ Albert: „Þetta er líka uppáhalds lagið mitt þegar ég er núna!“

  • Segja ljótt

    Pabbi: „Hvaða lag heldurðu að vinni í kvöld?“ Sandra: „Reykjavíkurdætur“ Albert: „En þær segja ljótt!“ Pa: A: „Bits!“

  • Samstarf

    Forráðamenn Krabbameinsfélagsins og Milljónamæringanna: Ég: „Þið eruð eflaust að velta fyrir ykkur hvers vegna ég boðaði ykkur á minn fund, en þannig er mál með vexti að ég er með geggjaða hugmynd að samstarfi. Lokið augunum og sjáið fyrir ykkur: Mottumarsbúa Cha Cha Cha!“