Category: social

  • Í skóla barnanna velur skólastjórinn árlega bekk af handahófi og tekur fullan þátt í öllu. Í dag fékk hún að fara með 6. bekk í stærðfræði, dönsku, fatasund og skeggræða sætustu strákana í skólanum í frímínútum

  • Fangelsi

    Fórum á Kardemommubæinn í gær og Albert spurði mikið um rimlana á glugganum þegar Kasper, Jesper og Jónatan voru komnir í tugthúsið

  • Fundur

    Þegar fundur byrjar á Teams en tölvan er eitthvað hæg svo þú prófar að endurræsa Vivaldi vafrann, en það var greinilega ekki vandamálið því það tekur heila eilífð og svo byrjar Vivaldi allt í einu að spila tónlistarvideo úr einum glugganum, nema glugginn birtist ekki enn svo þú getur ekki pásað og nú heyrir þú…

  • Bangsaknús

    Bangsaknús á öll sem eiga bágt í dag því þau eru illa haldin af friggatriskaidekaphobia

  • Girðingin

    Ég var að reyna að lesa fyrir Albert fyrir háttinn í gærkvöldi, en eyrun á honum voru eitthvað annars hugar… Albert: „Kennararnir í leikskólanum voru ekkert að skamma mig í dag. Og ekki í gær heldur“ Pabbi: (bíddu, var ekki frí í leikskólanum í gær?) „Vá!“ A: „Eða jú … þau skömmuðu mig í dag“…

  • Svona upplifði fólk í Mið- og Austur-Evrópu seinni heimsstyrjöldina

  • Albert fær leyfi til að horfa á sjónvarp í klukkutíma meðan hann bíður mömmu Pabbi: „Þú getur stillt tímann í síma á 60 mín“ A: *fiktar heillengi í síma* „Það er ekki hægt að stilla á 60 mín svo ég stillti á 59 mín!“ P: *þumall* A: „…svo þegar pípir stilli ég á 1 mínútu“…

  • Grill

    Þegar börnin þín grilla þig á teini

  • Mynd

    Eftir að pjakkurinn var búinn að útskýra fyrir mér hvað væri á myndinni (hann með klurrurnar og hundinn, hús og auðvitað bíll í bílskúrnum) spurði hann hvort ég vildi taka myndina með í vinnuna

  • Egg

    Albert samkjaftaði ekki þegar hann átti að fara að sofa í gærkvöldi. Ég sussaði á hann, sagði honum að tala minna og sofa meira, setti m.a.s. fingur á munninn á honum, en munnurinn barasta gat ekki hætt. Á endanum urðu þó þagnirnar lengri og lengri … Albert: „Á morgun þurfum við að tala um dýr…

  • Perlan

    Frá Ance: Jebb. Þetta voru börnin mín. Öskrandi yfir alla Öskjuhlíðina niður úr Perlunni: „MAMMAAAA, MEGUM VIÐ FÁ ÍS???” á meðan ég var að tjilla með Húgó á túninu fyrir neðan. Seinna spurði ég þau um þessa villimanna hegðun og benti á það að pabbi var nú með þeim. „En hann var búinn að segja…

  • Rennibraut

    Albert: „Þetta er hjarta-rennibraut og ég er að renna mér niður og hugsa um alla sem ég elska“