Aðlögun Söndru og pabba, dagur 3: Sandra stendur sig eins og hetja, leikur sér með playmo, syngur jólalög, svarar þegar á hana er yrt og setur saman riiiiisastóra Brio lestarteina. Svo stingur hún pabba af og fer að mála jólatré og stjörnu og setja glimmer á alltsaman. Í lok dags fékk hún verðskulduð verðlaun og riiisastórt bangsaknús
Pabbi virðist afturámóti vera búinn að mála sig algerlega út í horn og er hreinlega sendur heim áður en jólaballið og jólamaturinn byrja. Skældi ekkert að ráði á leiðinni heim, en var samt þusandi og nöldrandi eitthvað
Category: social
stuff that’s rehashed from social media
-
Sandra í aðlögun, dagur 3
-
Sandra í aðlögun, dagur 2
Sandra hefur tekið stórstígum framförum og stóð sig t.d. eins og hetja sem 25% kvartetts sem tróð upp með jólatónleika óforvarandis. Hún er einnig dugleg að eignast vini og undi sér dável þó pabbi hyrfi í nokkra klukkutíma
Pabbi kom sterkur inn, í útiveru ýtti hann herskara af börnum í rólu og í matnum kláraði hann allt grænmetið OG gulu baunirnar.
Í hvíld var hann afturámóti tekinn útaf í forvarnarskyni og sendur í kaffi þar sem hann undi sér ágætlega í upphafi en varð því miður ofsalega eirðarlaus og órór um leið og rafhlaðan í símanum gaf sig
-
Sandra vill þakka Askasleikjó kærlega fyrir rúsínurnar sem hún fékk í skóinn
-
Sandra í aðlögun, dagur 1
Fyrsti dagur í aðlögun á nýjum leikskóla gekk barasta mjög vel hjá okkur Söndru
Svakalega stoltur: algjör ró í hvíldinni og allt klárað af diskinum
Ég fékk mikið hrós. Sandra bangsaskinn hlýtur að ná þessu á næstu dögum
Hræðilegt skrýmsli..? Eða bara Sandra bangsaskinn? -
Þetta er allt og sund!
Pabbi: „Ó hókí jókí pókí – ó hókí jókí pókí – ó hókí jókí pókí – þetta er allt og sumt!“
Sandra: „Nei!! Sund!“
P: „Ókei! Þetta er allt og sund!“
-
samkvæmt símreikningi talaði ég í gemsann í 571 mínútu í nóvember
það gerir níu komma fimm klukkutíma
og átjánhundruð og fjórar skrilljónir
-
Sandra: „Þarna er pabbi að kyssa Telmu!“
Ööööö, pabbi að kyssa Telmu?!? -
Kjalarnes
Þá erum við flutt á Kjalarnes, með tvö börn og kött!!
-
wanting to make absolutely sure i get the most out of this lovely day, Sandra lovingly woke me up at 6.20
-
Tvö leikhús í gær, og tvö uppáhalds-kvót:
Ekki gera eins og mamma þín segir, jens!
Stjórnmálamenn leysa ekki vind, þeir eru vindurinn
-
I work for a huge, US-based global corporation that is so fond of three-letter-acronyms that they are only ever called TLAs. I have often wondered what on earth most of them mean. Today I got to experience one of them – WFH – first hand.
Must say there was a lot more Timmy Time than I expected.
-
svo langt síðan ég hef hjólað að ég þurfti að gjugga í manúalinn fyrst :s