Category: social

stuff that’s rehashed from social media

  • Panda

    Aðeins 99,9% geta fundið pönduna á innan við mínútu!

  • Hefur aldrei langað eins mikið til að setjast á borð og núna

  • Í sjónvarpinu syngur Diddú

    Pabbi: „Vilt þú syngja svona?“

    Sandra: „Nei“

    P: „Þú þarft ekki að syngja þetta lag, bara e-ð skemmtilegt?“

    S: „Rassi, rassi trallala?“

  • Dýrð sé Óðni í upphæðum fyrir sítrónupipar

  • Sandra situr í sófanum, komin í náttföt. Í sjónvarpinu syngur Diddú aríu.
    Pabbi: „Sandra, langar þig að syngja svona, fyrir framan fullt af fólki?’“
    Sandra: *fitjar upp á nefið*
    P: „Þú þarft ekki að syngja svona óperu eins og hún, ég meina langar þig að syngja eitthvað sem þú kannt og þér finnst skemmtilegt að syngja?“
    Sandra: „Rassi rassi trallala?“

  • Einhver hefur litið vitlaust á dagatalið í morgun

  • síðbúinn hádegisverður, spaghettí með sósu

  • Þegar klukkan er 6.23, konan á næturvakt, báðar dæturnar skriðnar upp í rúm til þín — vakandi að sjálfsögðu — og þú færð óþægilegt hugboð um að Bjúgnakrækir hafi gleymt einhverju

  • ítarlegar og hávísindalegar rannsóknir mínar undanfarið hafa leitt í ljós að það getur hreinlega verið gaman að eiga börn.

    að því gefnu að maður sé þokkalega vel sofinn

  • Telma (3,5) gerir jólakort fyrir opis (afa sinn í útlöndum).

    Teiknar að sjálfsögðu fyrst draug, krókódíl og saumavél

  • eftirvæntingin hefur verið stigvaxandi síðustu vikur og var orðin áþreifanleg. hún hafði lítið plastegg utanaf leikfangi úr Kindereggi með sér í leikskólann í morgun, svona just in case

    þegar til kom þurfti tönnin smá aðstoð og Sandra dró hana hreinlega úr með handafli rétt fyrir svefninn


    Telma, sem hefur undanfarna daga bent á flestar tennurnar sínar og sagt „Þessi tönn er laus“ varð skelfingu lostin og virðist vera hætt við að missa tennur og „fá blóð“, amk í bili