Á fyrstu 3 mín eftir að ég set þvottavélina í gang finn ég yfirleitt svona 4 hluti sem hefðu átt að fara með
Category: social
stuff that’s rehashed from social media
-
Heima
Það er gott að koma heim aftur
-
Brúðuleikhús
Brúðuleikhús Fyrsti þáttur: hvað á að gera við börnin?
Á endanum stal lögreglan þeim, en það má samt ekki setja þau í „fangels“
-
Wawel dreki
Wawel dreki að drekast -
Turn
Turn út um turnglugga -
Árshátíð
Árshátíð í 7 tíma í gærkvöldi
Fór ekki 1x á klósettið.
Annað hvort er ég kominn með samkvæmisblöðru dauðans eða ég drakk allt of lítið
-
Mús með slaufu
Mús með slaufu -
-
-
bað um pólska pylsu í Kraków
þeim fannst ég ekki mjög fyndinn
-
Leigubílstjóri í Kraków
var latur og tók leigubíl upp á hótel. bílstjórinn sagði ekki mikið á leiðinni, nema kvartaði undan traffíkinni og svo: „einmitt! seinni partinn á föstudegi er tilvalið að fara í smá vegavinnu!“’”
það er rétt sem þau segja hugsaði ég – Pólverjar eru síkvartandi!
uppi á hótelherbergi tæmdi ég vasana og fattaði um leið að síminn varð eftir í leigubílnum
rótaði í hrúgunni úr vasanum. fann kvittunina frá leigubílnum. hljóp niður í afgreiðslu í ofboði til að sjá hvort hægt væri að reyna að ná í gaurinn
það fyrsta sem ég sé þegar lyftudyrnar opnast er kaldhæðinn en elskulegur leigubílstjóri að afhenda símann minn í afgreiðslunni
Jacek Szczepa?ski, ég gæti ekki sagt eftirnafnið þitt þó lífið lægi við, en ég elska þig!
ég reyndi að knúsa hann, en hann vildi það ekki. klappaði honum vel á bakið og sagði „thank you“ og „dzi?kuj?“ átta milljón sinnum á meðan hann lagði á flótta frá atlotum mínum
-
Þegar þú ferð á bás á almenningssalerni til þess eins að skipta um föt og hreyfiskynjarinn sturtar fimm sinnum niður