Hvar er löggimann?
Where’s the cop?

Fengið að láni héðan:
https://www.facebook.com/photo/?fbid=4738863363345&set=a.1331663945489
stuff that’s rehashed from social media
Hvar er löggimann?
Where’s the cop?
Fengið að láni héðan:
https://www.facebook.com/photo/?fbid=4738863363345&set=a.1331663945489
Girðing fyrir leiknum?!?
Sandra: *10 mín einræða um Hvolpasveit*
Pabbi: „Já, er Kappi lögregluhundur?“
S: *hneyksluð* „Já pabbi! Ertu ekkert að fylgjast með?!?“
Telma: „Pabbi, mig langar í hunder-egg!“
Pabbi: „Nei, það er ekki í boði, ástin mín“
T: „Pabbi, þegar ég er orðinn miklu stærri en þú ætla ég ekki að gefa þér hunder-egg!“
Pabbi bendir á sjónvarpið: „Sjáiði stelpur, þetta er Eiffel-turninn! Hann er í París, í Frakklandi“
Sandra (6) hugsi: „Það má segja fokk í Eff-orða-turninum!“
Pínulítil!
Ekki pínulítil!
Spái því hérmeð að Framsókn vinni stórsigur í kosningunum í haust út á loforð um að leiðrétta yfirdrátt þeirra sem fóru á EM
Árið er 2032, sóðaleg knæpa í Moskvu.
„Hæ pabbi, hvar varst þú í seinni hálfleik á Ísland – England á EM ’16?“
„Að syngja Bí bí og blaka fyrir þig.“ *brestur í grát* „Hvernig fannstu mig?“
langar að prófa nýja blóðþrýstingsmælinn, en er hræddur um að hann springi
Ísland skorar. Sandra brjálast, öskrar og dansar.
Markið endursýnt. Sandra brjálast, öskrar og dansar: „Tvö!“
Ég var orðinn vansvefta í gær eftir að hafa ekki sofið nóg í langan tíma, en asnaðist samt til að ílengjast yfir kosningasjónvarpinu frekar en fara að sofa kl. 9.
Sofnaði um miðnætti. Um hálftvö kom Sandra sem átti erfitt með að sofna aftur, heilinn hennar var að láta hana hugsa eitthvað ljótt.
Að svo miklu leyti sem ég var enn með rænu er ég þokkalega viss um að við höfum bæði sofnað um hálffjögurleytið. Hún, 120 cm há, á sinni þykku og góðu 200 cm löngu dýnu, ég, 190 cm hár, á þunnri 150 cm langri dýnu á gólfinu.
Nema hvað, ég hef enga aðra afsökun fyrir því að þær sitja nú inni í stofu og horfa á jólaþættina af Skoppu og Skrítlu.
Uppfært: