Category: social

stuff that’s rehashed from social media

  • Milljón króna hugmynd: Frystihólfaleigan Alfreð

  • Klukkan: *er 6.15*

    Barn: „Pabbi, hvar er peningurinn?“

    Pabbi: „Peningurinn?!“

    Á þessari stundu er unnið að því að kæra Tannálfinn til Mannréttindadómstóls Evrópu

  • Telma: „Veistu af hverju þetta heitir níva pera?“

    Pabbi: „Nei, af hverju heitir þetta hnífapör?“

    T: „Af því að leikskólinn segir það!“

  • Synd hvað ungt fólk í dag er lítið að vinna með „Haltu ká joð“

  • Þegar bílhurð barnsins þíns fýkur á glænýjan bíl og rispar ?

    Það er stundum erfitt (og dýrt) að breyta rétt, en verra að breyta rangt

  • Þegar þú hefur óvart rétt fyrir þér

    „Það er enginn stjórnmálamaður í nútímasögunni sem hefur gert eins mikið fyrir jafn fáa“

    Sigursteinn Sævarsson, um átrúnaðargoð sitt Sigmund Davíð
  • Never Tell

    Don’t you know nothin’?
    You never tell on someone.
    Don’t you know nothin’?
    You ain’t never going to tell on someone.

    Violent Femmes – Never Tell
  • Telma er að flýta sér að verða stór og missti tönn í kvöld.

    Hún verður 5 ára 10. feb. (nema hún rumpi því af fyrir jól)

  • Hér eru tvær stelpur með lítil hjörtu sem standa fyrir framan sjónvarpið til að geta verið fljótar að forða sér inn í herbergi þegar spennan verður óbærileg í Línu Langsokk

  • Er þessi bíómynd um púlt í Háskólabíó frá þeim sömu og gerðu myndina um dyrnar að Höfða haustið ’86?

  • Pro tip: Vera innanum fólk sem lætur þig líta vel út.

    Þetta hefur gert kraftaverk fyrir Sigurð Inga…

  • Ance kom að mér áðan þar sem ég raulaði með Söngvaborg

    Sendið hjálp