Category: social

stuff that’s rehashed from social media

  • Þegar það tekur þig 2 daga að losa stíflu í þvottahúsinu, því fyrri eigandi setti hilluvegg OFAN á niðurfallið

  • Setti hausinn í þennan bita. Byggingin skalf. Ekkert blóð, en ég man reyndar ekkert sem gerðist fyrir 12. maí

  • það var strætótt sig

  • Rúsína?

    Pabbi: „Ertu rúsína?“

    Telma: „Nei!“

    P: „Ertu sykursnúðarúsínubollurass?“

    T (grætur): „Pabbi, þú kallaðir mig rass!“

  • Mismæli

    trúðapiss

    mannveskja

    flottavél

  • Í Krónunni í Mosó.
    Sandra potar í pabba sinn og bendir mjög áberandi „Pabbi! Sérðu manninn þarna … Pabbi, sérðu hann! … Sjáðu pabbi, hann er þarna!!“
    Pabbi lítur upp og þarna stendur í öllu sínu veldi Gunnar (Gussi) Jónsson (lék Fúsa í Fúsa).
    Hikandi, örlítið smeykur pabbi: „Ööö, við skulum ekki hérna … það er ekki fallegt að … já, ástin mín?“
    Sandra: „Hann er í bleikum bol með einhyrningi!!“

  • „Þú ert svo neikvæður!“

    Ein 6 ára ekki sátt með pabba sinn, sem vildi ekki kaupa neitt sem hún bað um í búðinni…

  • Korpúlfsstaðir, Lágafellskirkja, Hallgrímskirkja (séð frá rótum Esjunnar) er meðal þess sem kallað hefur verið Frozen kastali

  • Krulla

    ok, nú vantar mig bara kúst og skauta


    Uppfært: Það þarf auðvitað enga skauta í krullu…

  • Hlustaði á lýsinguna á leiknum í bílnum í gærkvöldi.

    Kom á fund, 3 mín eftir af leiknum. „Æ, það er nú ekki eins og maður missi af neinu“

    *slökkv*

  • Vildi ekki vakna við vekjarann, því ég var að leita að fötunum mínum.

    Það er mjög óþægilegt að hlaupa um á kjörstað á kjördag á nærbuxunum

  • Þegar þú mætir 2 gulum bílum á leiðinni í vinnuna og velur að lifa áfram fyrir börnin þín frekar en reyna að ná bílnúmerunum