Category: social

stuff that’s rehashed from social media

  • Pínulítið

    Annað hvort er hundur nágrannans kominn með ljós í ólina eða það var pínulítið geimskip að brotlenda fyrir utan gluggann hjá okkur

  • Skv. þessu á ég Facebook vin sem heitir Hverfisgata 12 og er hús

  • Af því ég veit þið voruð líka að velta því fyrir ykkur: Á ensku heitir Hænulína í Hvolpasveit Chickaletta

  • Socialism never took root in America because the poor see themselves not as an exploited proletariat, but as temporarily embarrassed millionaires

    John Steinebeck
  • Hverjum hefði dottið í hug að birtingarmynd byltingar öreiganna væri appelsínugulur milljarðamæringur með fasíska tendensa?

  • Flokkur

    Framsókn

  • Það er bara ein fokking regla — og það er að í skektu verður að vera negla

    (annars sekkur hún sko)

  • Sit krókloppinn í 3° hita í skautahöll meðan einhver spilar öll uppáhalds jólalögin sín á 11

  • Stelpurnar voru að fara að sofa og Sandra bað mig að syngja Gamla Nóa.

    Pabbi: „Tja, það er reyndar ekki vögguvísa, en hvaða útgáfu? Keyrir kassabíl?“

    Telma: „Er að fokka fokk“

    Ég kann það reyndar ekki, en hún kvartaði ekkert þegar ég söng „er að poppa popp“

  • Þegar þú þarft að dobbla barnið til að skilja dúkkuna eftir í bílnum og lofa að hún sitji á koppnum/ bílstólnum í allan dag

  • Svo falleg stund: konurnar í lífi mínu (4, 6 og 33 ára) sitja saman og horfa á Skam frá í gær

  • Útidyrnar voru opnaðar 4x á 5 mín.

    Þegar ég athugaði kom í ljós að dæturnar höfðu fengið heilan herskara af ósýnilegum leynivinum í heimsókn