Hvað stendur í skilmálum Tannálfsins um tennur sem finnast aldrei eftir að þær losna?
Category: social
stuff that’s rehashed from social media
-
-
Sandra vs Primal Scream. Hvor er betri?
Sandra vs. vs. Primal Scream -
Ekki-veður
sól, heiðsksírt, 0 stiga hiti og 0m/s allan daginn Prentaði þetta út og setti í veskið.
Geng nú um og skora á fólk að spyrja mig um rokið á Kjalarnesinu…
-
Raula. Kortér. Ekkert lífsmark. Sperri eyrun. Rýni inn í myrkrið. Getur það verið? Örlitið meira bí bí og blaka til öryggis. Eru þær virkilega sofnaðar?
„Pabbi, heitir Djöstin Bíber Djöstin Bíber?“
-
Þegar þú tékkar hvort þitt tré er enn á pallinum áður en þú þorir að flissa að trénu sem dansar um götuna í vindinum
Jólatré á flandri, ekki mitt (ég tékkaði!) -
Ekki Hofsgrund
Sandra: „Við erum ekki að keyra á Hofsgrund núna!“
Pabbi: „Nú, er það ekki? Hvað heitir gatan þá?“
S: „Kjúklingasúpugrund!“
-
May the force be with you!
May the force be with you! -
Ráðstafanir
Á meðan Ance leit af Albert í smástund í gær var hann búinn að rúlla sér út á mitt gólf.
Þetta kallar á ráðstafanir
-
„Padda sem heldur á bleikum spýtukarli og stelpa í splitt“ Sandra teiknaði mynd
-
Í gær: Albert lærði að velta sér á magann
Í dag:
Borgar sig ap byrgja brunninn -
2017
Þá er 2017 gengið í garð og hér í sveitinni byrjar það með látum!
Albert útskrifaðist í gær úr stífum æfingabúðum þar sem farið var yfir grunnatriði þess að velta sér á kviðinn. Á ögurstundu, eftir að faðir hans hafði pískað hann áfram eins og pínulítinn kínverja í fimleikabúðum tókst honum loks að velta sér yfir á bumbuna. Svo skemmtilega vildi til að þetta var sirkabát 20 sekúndum eftir að faðir hans lagði frá sér (kvik)myndavélina þegar minniskortið fylltist.
Stelpurnar standa einnig í stórræðum, en þær fluttu búferlum. Nú býr Telma í efri koju en Sandra er flutt í þá neðri. Sandra vaknaði tvisvar í nótt og bar við erfiðleikum að aðlagast lífinu á nýja staðnum.
-
Gleðilegt nýtt ár!!
Fór með Telmu að kveðja gamla árið með látum. Reyndi að benda henni á norðurljósin, en henni var sléttsama
Gleðilegt nýtt ár!!
Áramótabrenna