Sandra, 6 ára, kennir Telmu, 5 ára, að daba
Category: social
stuff that’s rehashed from social media
-
-
Ekki matur
Erum að æfa frumsamið lag fyrir næsta tíma í ungbarnasundi: „Kennarinn er ekki matur“
-
Þegar þú ert að labba í gegnum IKEA og lífsviljinn fjarar út og þú tönnlast á því í hausnum á þér að þig virkilega vanti það sem þú ætlar að kaupa og það sé ekki í boði að gefast upp og deyja og parið fyrir framan þig sem segir um eina útstillinguna „Nei, þetta er nýtt!“
-
Konan vill ekki segja hvað ég gerði af mér. Segir bara að ég verði að fara í IKEA
-
Í vinnunni geng ég fram á týndan ungan dreng.
Ég: „Ertu týndur? Hvað heitir pabbi þinn?“
Tud: „Pabbi minn!“
-
Þegar ég greip bílinn hennar Hörpu þar sem hann rann af stað niður Egilsgötuna
-
Sandra stuggar aðeins við Telmu á leið út um dyrnar.
Telma, grátandi: „Það á ekki að hrinda fólki! Hún var að hrinda fólki!“
-
Æðislegar buxur
Ég veit að það lítur út eins og Sandra haldi á ljósmynd af mér ískrandi af gleði yfir nýjum og æðislegum buxum, en (haldið ykkur fast!!) þetta er í raun og veru mynd sem Sandra teiknaði af mér ískrandi af gleði yfir nýjum og æðislegum buxum
Pabbi í æðislegum buxum PS: Nei, ég er ekki að tromma á ístruna, ég er auðvitað að benda á þessar æðislegu buxur
PSS: Nei, ég á ekki svona nýjar og æðislegar buxur í alvörunni 🙁
-
Göngutúr
Við Albert rákumst fyrir tilviljun á Svövu frænku þar sem við vorum í göngutúr í Breiðholtinu í morgun. Albert tók ekki annað í mál en að bjóða henni að verða okkur samferða.
Nema hvað, það var kalt en mjög fallegt veður
Kalt en fallegt -
Það verður ekki af Will Ferrell tekið að vondu myndirnar hans eru gersamlega ömurlegar
-
Stóru málin í vinnunni: Klósettið með brotnu setunni sem klípur mann í rassinn, eða klósettið með lélega netinu?
-
6 ára sýnir 5 ára hvernig á að nota brjóstapumpu