Sandra, 6 ára: „Þegar maður verður 18 ára ráða pabbi og mamma ekki lengur yfir manni! Þá má maður gera hvað sem er … fara út í sjoppu og kaupa tyggjó og svona!“
Category: social
stuff that’s rehashed from social media
-
Sjö mánaða rjómabolla
Bolla Sumar bollur eru ekkert verri þó þær séu orðnar 7 mánaða
-
„Veistu, ég held það sé ekki alveg nóg að skrifa „Amma“ á bréfið til ömmu í Lettlandi“
Bréf til ome (ömmu) í Lettlandi -
Ég sé ekki skóinn fyrir trjánum
-
Tómatsósa
Sandra: „Tómatsósu!“
Pabbi: „Nei, þú ert búin með matinn! … þú færð ekki eintóma tómatsósu!“
S: „Af hverju ekki?“
-
systur skipta góssi bróðurlega milli sín
Systur skipta m&m bróðurlega á milli sín -
Ekki aftur
andskotinn hafi það!
Sbr
Í atvinnuviðtali: „Gallar? Tja, ég segi apótek þegar ég ætla að segja bakarí, og kaupi stundum tannbursta í barnastærðum fyrir mig…“
-
Það eina sem er fallegra en sofandi ungabarn er sofandi ungabarn sem var búið að öskurgráta í 45 mínútur
-
Telma, tæpra fimm ára, les: „H-e-r-j-ó-l-f-u-r“
Stoppar, lítur á mig og brosir – „jól!!“
-
Segir mögulega eitthvað um hversu tígulega ég hleyp að fyrr í dag lögðu tíu hross niður vinnu í dágóða stund til að góna á mig
-
„Sko, mér til varnar var Albert [hálfs árs] orðinn pirraður áður en ég setti sundgleraugun á hann!“