Category: social

stuff that’s rehashed from social media

  • „Pabbi, þetta er langbesta platsagna sem ég hef nokkurn tímann smakkað!“

    / “Gee whiz, daddy, this is by far the best lasagna I have ever tasted!”

  • Chillar og horfir á Urra

    / Raa Raa and chill

  • Þá kom Þorgeir

    og var með gorgeir

  • Uppáhaldið mitt á sunnudagsmorgni er að bjóða börnunum upp á AB mjólk með músínum og rúslí

  • Telma við afmælisgjöf sem stendur til að gefa: „Ekki elska mig, þú færð ekki að eiga heima hjá mér“

  • bulsur

    You had me at plastgörn

  • Svo hægt

    Vecmamma (langamma í Lettlandi): „Labbaðu með mér út í póstkassa“

    Sandra: „Get ekki, við erum að fara!“

    Pabbi: „Við erum ekki að fara strax. Af hverju fórstu ekki með henni?“

    S: „En hún labbar svo hægt!“

    Ég ræði við hana um að vera góð við langömmu

    Fimm mínútum síðar geng ég framhjá glugga og sé að vecmamma er komin næstum hálfa leið út í póstkassa – kannski 20 metra af 40.

  • Í sjónvarpinu er þátturinn „Milljón mataruppskriftir með matarlími með Mette (Blomsterberg)“

  • „Ormurinn segir „vóó“ af því hann hefur aldrei í lífinu séð svona stórt blóm“

  • Urri

    Epískur þáttur um Urra að læra að flauta. Get horft endalaust á þetta

    Raa Raa the Noisy Lion – Raa Raa’s Whistle Worries
  • Alltaf lærir maður. Hélt ég ætti óendanlega mikið af ást fyrir börnin, en eftir 3 þætti í röð af Alvin og íkornunum er lítið sem ekkert eftir

  • Hverjum er ekki sama hvar strætó er, HVAR Í GUÐSVOLUÐUM FOKKANUM ER ÉG?