Category: social

stuff that’s rehashed from social media

  • var búinn að gleyma að ég fæ brjóstsviða af viskýi 🙁

  • Gömlu vinirnir að snæðingi

  • Á ferðalagi um heiminn er gott að stinga reglulega í samband við internetið til að senda af sér fréttir

  • Legroom

    Þetta köllum við legroom


    Uppfært 16. október: Klúðraði heimleiðinni 🙁

  • Barn: „Hvað er nú þetta?“ ?

    Pabbi: „Ööööö, ég veit það ekki! Ja hérna hér! Ég hef barasta ekki minnstu hugmynd, ha! Komdu nú!“

  • Í heimi á heljarþröm eru þetta nákvæmlega fréttirnar sem maður vill heyra

  • Gellan mörgæs

    Yfir Krakkafréttum:

    Telma: „Gellan mörgæs?!“ ?

    Pabbi: „MAgellan mörgæs“

  • Stelpurnar sátu og skoðuðu Hvalasafns-appið. Sandra var að sýna Telmu og ausa úr sínum viskubrunni – það var sko hvalaþema nýlega í skólanum hjá henni.

    Telma: „Steypirefur?“

    Sandra: „Steypireyður!“

    T: „Steypireður?“

    S: „Steypireyður!!“

    T: „Er hann alltaf reiður?“

  • Ég: Brjálaður þegar fyrirtæki svara ekki strax í símann.

    Líka ég: Brjálaður þegar starfsmaður svarar í síma frekar en að afgreiða mig.

  • Þessi ungi maður má ekki sjá bíl eða farartæki án þess að skoða nánar