Fegurstu orð íslenskrar tungu eru „Boð um leikskóladvöl“
Category: social
stuff that’s rehashed from social media
-
-
Sandra og Telma hafa tvær stillingar þegar kemur að ferðum á prívatið:
Klósettið er laust:
– Neinei, ég þarf aldrei aftur að fara á klósettiðÉg er á klósettinu:
– EF ÉG ÞARF AÐ BÍÐA MEIRA EN ÞRJÁR SEKÚNDUR DEY ÉG!! -
Salerni
Dætur mínar hafa tvær stillingar þegar kemur að ferðum á salernið:
Klósettið er laust: „Neinei, ég þarf aldrei aftur að fara á klósettið“
Ég er á klósettinu: „EF ÉG ÞARF AÐ BÍÐA MEIRA EN ÞRJÁR SEKÚNDUR DEY ÉG!!“
-
„Hvar er regnhlífin, í Guðna bænum?!“
-
Bolli
Nýtt ár, nýr kaffibolli
-
Má ég fá ís?
Sandra: „Pabbi, má ég fá ís?“
Pabbi: „Varstu ekki búin að spyrja mömmu þína? Hvað sagði hún?“
S: „Hún sagði nei“
P: „Og ég segi líka nei“
S: „Pabbi … þú átt ekki alltaf að herma eftir mömmu“
Barn: „Pabbi, má ég fá ís?“
— siggi mús (@siggimus) January 3, 2018
Pabbi: „Varstu ekki búin að spyrja mömmu þína? Hvað sagði hún?“
B: „Hún sagði nei“
P: „Og ég segi líka nei“
B: „Pabbi … þú átt ekki alltaf að herma eftir mömmu“#pabbatwitter -
Í sjónvarpinu birtist auglýsing fyrir Ófærð 2.
Sandra: „Pabbi, var verið að auglýsa eitthvað sem verður í sjónvarpinu eða bara að segja fólki að passa sig að drepa ekki fólk?“
-
Fjársjóðsleit
Þegar bleyjulaus ungur maður er farinn að spora út alla stofuna upphefst bráðskemmtileg fjársjóðsleit sem við höfum kosið að kalla Hvar er pollurinn?
-
Sandra: „Þumalfingur, þumalfingur, hvar ert þú? ? Hér er ég! Hér er ég! Góðan daginn, daginn, daginn!“
Telma horfði á hendurnar á sér í smástund áður en hún byrjaði: „Efforðfingur, efforðfingur, ? hvar ert þú?“
Dóttir 1: „Þumalfingur, þumalfingur, hvar ert þú? ?
— siggi mús (@siggimus) December 29, 2017
Hér er ég! Hér er ég! Góðan daginn, daginn, daginn!“
Dóttir 2 horfði á hendurnar á sér í smástund áður en hún byrjaði: „Efforðfingur, efforðfingur, ? hvar ert þú?“#pabbatwitter -
Ég ver hartnær 6% þess tíma sem ég er heima og vakandi í að vefja klósettpappír aftur upp á rúlluna
-
Ekki margir sem vita þetta, en þegar fína og fræga fólkið fer í fitusog eru notaðar stórar og flóknar vélar sem heita mörsugur
-
pray for me fam
Tilkynni stoltur að ég datt bara 1x!
PS: Kemur notalega á óvart hvað er lítið híað á fullorðna karlmenn sem nota grindurnar fyrir litlu börnin allan tímann en tekst samt einhvernveginn að líta út eins og beljur á svelli