Á jónsmessu er blásið til veislu, ölið kneifað, pylsurnar grillaðar yfir opnum eldi og heimasæturnar fá blómakrans



stuff that’s rehashed from social media
Á jónsmessu er blásið til veislu, ölið kneifað, pylsurnar grillaðar yfir opnum eldi og heimasæturnar fá blómakrans
Rakst á þennan í Cesis kastala í Lettlandi
Albert ætlar ekki að missa af neinu
Pabbi: „Jú sko, mamma er með venjulegt kaffi, en pabbi er með espresso, sem er mjög sterkt og alltaf í svona pínulitlum bolla“
Dóttir: „Sterkara en tyggjóið hans afa?“
Það besta við að brjóta reglulega skjána á símunum sínum eru lánssímarnir!
Þessi var með 128x160px myndavél!
Ísland er nottla frábært, en jarðarber úr garðinum eru líka alveg ágæt
Þegar þú gerir sérstaka ferð í höfuðstaðinn en þarft svo að stara vonleysislega út í tómið meðan þú drekkur espressó og borðar af því síminn er í viðgerð
Sjá líka:
Vúpp vúpp!
Í þessu tjaldi ætlar lítil hugrökk Telma að sofa í nótt. Hún hafði varla tíma til að kveðja foreldra sína áður en hún hljóp út, ásamt örlítið eldri frænku sinni og ömmu.
Á sama tíma situr Sandra og fléttar vinaband fyrir móður sína úr litlum gúmmíteygjum. Glaðvakandi og eldhress, enda svaf hún nær allan daginn til að jafna sig á því að gubba í gærkvöldi og nótt
Telma: „Ég veit af hverju ömmur og dáið fólk eru sett ofan í jörðina.“
Pabbi: „Nú? Af hverju er það?“
T: „Annars fyllist allt af dánu fólki og ömmum!“
Aðeins að skola skítinn af liðinu
Tilraun um að halda lífi í hitabylgju
Ekki útséð um að það takist
Kominn í 1,8 prómill skv þessu apparati