Category: social

stuff that’s rehashed from social media

  • Rúgbrauð

    Var greinilega ekki alveg nógu snöggur að verða við beiðni Alberts um meira rúgbrauð

  • Tær

    Pabbi: „Stelpur, ef þið eruð svona óþekkar slekk ég aftur á sjónvarpinu og þá þurfið þið að sitja og telja á ykkur tærnar“

    Barn: „Pabbi, við vitum alveg hvað við erum með margar tær!“

  • Ekkert jafnast á við fegurðina í því að bruna um þjóðvegi landsins og fylgja öðrum bíl eftir langar vegalengdir — í nákvæmlega 720m fjarlægð — í fullkominni harmóníu, krúskontrolið samstillt á einhverju kosmísku leveli

  • Víkingabrauð

    Gerðum víkingabrauð niðrí fjöru í Norðurfirði

    Fórum í ferð með Ferðafélagi barnanna

  • MacGyver

    Feeling: MacGyver

  • Strompar og skorsteinar

    Pabbi: *bendir* „Sérðu, þar sem eru strompar og skorsteinar, þar er Akranes.”

    Barn: ? „Ég sé enga strumpa!“

  • Sandra: „Má ég fá símann?“

    Pabbi: „Nei, held það sé komið nóg af síma í dag“

    Sandra: „Heyrðu pabbi, þú ert sjálfur í símanum allan daginn“

    Telma: „Já, meira að segja á klósettinu!“

  • Fjórar vikur

    Ég, í apríl: Já, það er geggjuð hugmynd að ég verði heima í fjórar vikur í sumar og hugsi um börnin! Við getum gert svo margt æðislegt saman!

    Líka ég, í júlí, 2 vikur búnar af 4: Grátandi inni á klósetti meðan börnin horfa á jóladagatal Skoppu og Skrítlu

  • „Pabbi, hvaða orð er dónalegra en efforðið?“

    Góð tilraun, Sandra mín, en ég er ekki fæddur í gær

  • Spaghettí

    Ég: Hmmm, þetta er allt of lítið spaghettí, best að sjóða örlítið meira

    Líka ég: Jedúddamía, við borðuðum ekki nema 10% af þessu. Ojæja, ég man þetta næst!


    Líka líka ég: Hmmm, þetta er allt of lítið spaghettí, best að sjóða örlítið meira

    Líka líka líka ég: Jedúddamía, við borðuðu


    Líka líka líka líka ég: Æ, það er svo mikið í afgang, geymi það og geri eitthvað sneddí á morgun!

    Líka líka líka líka líka ég, 7 dögum síðar: Af hverju í fjandanum var ég að geyma þetta, er til eitt dæmi úr mannkynssögunni um að einhver hafi borðað sólarhringsgamalt spaghettí?


    Beint af kúnni
  • Fb

    Ég er ekki alveg tilbúinn að hætta á fb, en þetta er skítakompaní sem er skítsama um notendur og þessvegna er ég með leiðindi:

    • Ef ég sé auglýsingu: … > Hide ad > Irrelevant
    • Ef einhver deilir síðu/ leik: … > Hide all from *Fyrirtæki*

    Á endanum verður ekkert eftir.

    Stundum finnst mér gaman að ímynda mér að í höfuðstöðvunum taki einhver eftir þessu brölti hjá mér: „Hr. Zuckerberg … ég veit ekki … hérna, sko: Við upphækkanlegt skrifborð í Reykjavík situr bakveik, miðaldra feitabolla sem hefur fundið lykilinn að falli okkar…“


    Hér er upphafið að löööööngum twitter þræði þar sem ég held utan um þetta verkefni (þessa þráhyggju):

  • Slæmar fréttir og góðar

    Slæmu fréttirnar: Opna húsið sem við ætluðum að vera með seinnipartinn verður lokað.

    Góðu fréttirnar: Íbúðin okkar er loksins seld.


    (brandarinn að ofan vísar í þetta sko)