Sosum eftir öðru að loksins þegar ég verð veikur er það sjúkdómur sem leggst nær eingöngu á leikskólabörn og klaufdýr
Tag: veikindi
-
Frík
Þegar þú kemur út í bíl eftir að læknirinn staðfestir að þú, fullorðinn maðurinn — jafnvel miðaldra — sért með gin- og klaufaveiki og í útvarpinu hljómar Freak like me
Sugababes – Freak Like Me -
Klunni
Ég veit að ég er alls ekki ekki handlaginn, jafnvel hálfgerður klunni, en mér finnst samt tú möts að fá gin- & klaufaveiki
Þetta helvíti er eins og að vera með pappírsskurð á hverjum fingri og handfylli af glerbrotum í hvorum inniskó
Það er eins og öllu sem ég kyngi hafi verið velt upp úr glerbrotum
-
Þrjú börn
Þrjú börn
- 2,5 ára með hlaupabólu
- 7 ára komin niður í 37,4°C
- 8,5 ára með 38,4°c
- Mamman á kvöldvakt
- Pabbinn með 38,1°c
Ef ég lifi má taka af mér sjálfræðið
Uppfært 1. mars 2019
Sosum eftir öðru að loksins þegar tvít frá mér kemst í fjölmiðla er það #pabbatwitter um hvað það hafi verið hræðileg hugmynd að eignast þrjú börn (FYI endaði ég í 39,3°c eftir orrustuna um Jóladagatal Skoppu og Skrítlu, en er nú hitalaus (& á lífi!)):
Þrjú hér ?
— siggi mús (@siggimus) February 28, 2019
2,5 ára með hlaupabólu
7 ára komin niður í 37,4°C
8,5 ára með 38,4°c
Mamman á kvöldvakt
Pabbinn með 38,1°c
Ef ég lifi má taka af mér sjálfræðið#pabbatwitterTvítið 
Mínar 15 mínútur af frægð voru í DV 🙁 Með fyrirvara auðvitað – ekki smella á hlekkinn -
Ekki hlaupa
Telma: „Albert, ertu með hlaupabólu?“
Albert: „Nei! Ekki hlaupa, labba!“
Uppeldið á leikskólanum að skila sér heim
-
Skjaldbaka
Sandra, með örlítinn hita: *skríður mjög rólega fram og aftur stofugólfið á fjórum fótum í þrjár mínútur*
Pabbi: „Hvað ertu að gera?“
S: „Ég veit það ekki. Held ég sé að herma eftir skjaldböku“
-
Veikur
Þegar þú ert svo veikur að þú nennir ekki einu sinni að snúa sænginni svo að tölurnar séu til fóta
Þegar þú ert svo veikur að þú nennir ekki að ná í fjarstýringuna þó það séu komnir 2 þættir af Hvolpasveit síðan börnin fóru
Þegar þú ert svo veikur að þú gengur 1.370 skref yfir daginn skv. apparati, þar af 1.300 til að sinna óforskömmuðum krakkaskröttum
