Spáið í því, það er stórt H á Grænlandi og stórt L á Noregi og þess vegna er búið að vera rok hér í heila fokkings viku

Ef myndirnar prentast vel má sjá hvernig púlsinn hjá mér rýkur upp í fullkomnu flútti við hviðurnar sem fóru yfir 50m/s
Við síðari hviðuna (sem drap mælinn
) hoppaði Telma upp úr rúminu og kom skríkjandi til okkar. Þá voru allir vaknaðir nema Albert og við ákváðum að flýja dómadags hávaðann (og stóru stóru rúðurnar) uppi og reyna að sofa niðri í stofu. Reyna.


Tíu dagar á Gotlandi:
Þið fáið þrjú gisk hvaða dag var planað að fara í skemmtigarð ![]()

Í galtómum strætónum sem fer í skemmtigarðimn tók á móti okkur viðkunnanlegur en forviða bílstjóri sem spurði hvort við værum að villast ![]()

Prentaði þetta út og setti í veskið.
Geng nú um og skora á fólk að spyrja mig um rokið á Kjalarnesinu…
Þegar þú ert á meginlandi Evrópu og veður-appið reynir að sýna þér veðrið á næstu veðurstöð

Skutlaði Söndru í afmæli rétt í þessu, og á leiðinni heim virti ég fyrir mér eyðilegginguna sem veðurhamurinn hefur valdið. þá fyrst gerði ég mér grein fyrir hversu svakalegt þetta hafði verið. Þarna lá yfirbreiðsla af kerru eins og hráviði í alsaklausum runna og mér varð hugsað til kerrunnar sem nú stendur einhversstaðar, alein og óvarin
Því langar mig að spyrja hvort ekki sé eitthvað sem við getum gert fyrir fólk á þeim svæðum sem verst urðu úti. hvað vantar ykkur mest? Mat? Hlý föt? Hreint Vatn? Rafmagn? Fötur?