
Tag: tónlist
-
Ó boj
Sandra með trompetinn sem hún er að byrja að læra á -
Sandra veltist um gólfið af hlátri þegar Heimilistónar byrjuðu „Fyndnasta lag í heimi“
-
Bammbarammbarammbamm
Telma, nær 6 ára syngur: „Bammbarammbarammbamm þett’er hægt“
Pabbi: „Humm … á ekki að segja Bammbarammbarammbamm þett’er hann?“
Telma: „Nahauts, Bryndís og Margrét segja alltaf hægt! Og þú hefur sko aldrei heyrt þetta lag! Þú varst sko ekkert í útiveru í leikskólanum í dag!“
Nokkrum mínútum síðar er hún gapandi að horfa á textavideóið
siggimus taggar Hildi á twitter og hún svarar Jæja, @hihildur, hvernig svarar þú ásökunum þess efnis að þú hafir stolið Bammbarammbarammbamm af þeim Bryndísi og Margréti, sem sömdu lagið í útiveru í leikskólanum í gær? https://t.co/ApiIOGeJd7
— siggi mús (@siggimus) January 13, 2018 -
Dirty
Smá Dirty með Sonic Youth er einmitt það sem vantaði til að losa um smá pirring á föstudagseftirmiðdegi
Sonic Youth – Dirty (Full Album) -
Þessa dagana syngur Sandra frumsamið lag hástöfum:
Remúlaði í mörg ár!
Hver vill syngja með mér? -
Prumpulagið
Ance og Sandra sáu vídeóið við prumpulagið í fyrsta skipti í dag
Mátti vart á milli sjá hvor fussaði og sveiaði meira
-
Lúftgítar
Sykurmolarnir og Johnny Triumph – Lúftgítar