Tag: Telma
-
Kókópöffs
Þegar dæturnar biðja um (annarra manna) kókópöffs í bústað Þegar dæturnar fá sér 3 skeiðar og gefa svo pabba til að klára
-
Andlitsmálning
Barn: „Ég ætla að mála á þér andlitið, pabbi? Hvað viltu vera?“ Pabbi: „Tígrisdýr!“ Barn: *sleikir pensil*
-
Klukka
Að kenna barni á klukku: „Þú færð ís kl 7”
-
Ást
Sandra og Telma voru komnar á fætur kl. 6.15. Kannski finnst þeim ég elska sig of mikið?
-
Uppeldi
Svipmyndir úr uppeldi: Pabbi: „Hlustiði aldrei á pabba?“ … P: „Hlustiði aldrei á pabba?“ … P: „Hlustiði aldrei … æi!“
-
Dalir og Snæfellsnes
-
Ho ho
-
Einþáttungur á matmálstíma
Pabbi læðist úr stofu og kíkir fyrir horn til að fylgjast með borðsiðum dætra sinna í laumi. Sandra: “Hvað ertu að gera pabbi?” Pabbi: “Ööö, ég er að njósna!” S: “Ég sé alveg bumbuna þína pabbi!”
-
Ostur
Ance heyrði í Telmu inni í herbergi, flissandi bakvið hurð. Kom að henni nagandi oststykki. Réttra fjegurra vetra og orðin föðurbetrungur! Exhibit A:
-
Débastían
Telma: „Ég á ekkert dót, bara Débastían“ Pabbi: „Bara hvað?!?“ Sandra: „Hann heitir Sebastían!“
-
Telma teiknar
-
það leynist ýmislegt í vösunum á útigöllum lítils fólks