Tag: Telma

  • Sandra og Telma hafa tvær stillingar þegar kemur að ferðum á prívatið: Klósettið er laust:– Neinei, ég þarf aldrei aftur að fara á klósettið Ég er á klósettinu:– EF ÉG ÞARF AÐ BÍÐA MEIRA EN ÞRJÁR SEKÚNDUR DEY ÉG!!

  • Salerni

    Dætur mínar hafa tvær stillingar þegar kemur að ferðum á salernið: Klósettið er laust: „Neinei, ég þarf aldrei aftur að fara á klósettið“ Ég er á klósettinu: „EF ÉG ÞARF AÐ BÍÐA MEIRA EN ÞRJÁR SEKÚNDUR DEY ÉG!!“

  • „Hvar er regnhlífin, í Guðna bænum?!“

  • Sandra: „Þumalfingur, þumalfingur, hvar ert þú? ? Hér er ég! Hér er ég! Góðan daginn, daginn, daginn!“ Telma horfði á hendurnar á sér í smástund áður en hún byrjaði: „Efforðfingur, efforðfingur, ? hvar ert þú?“

  • Þjófstörtuðum um fimmleytið því Albert er svo lítill, og lokatölur eru komnar í hús: Ég fékk 2 pakka, en við þurfum að flytja í stærra húsnæði til að hafa pláss fyrir gjafirnar til barnanna

  • Mér til málsbóta vil ég bara segja að ég fór sko ekki raskat að skæla, þetta var fáránlega vel gert jóladagatal, ég er vansvefta og hálf veikur og ég var nýverið að skera lauk og yngri dóttir mín grenjaði miklu meira (Jóladagatalið Snæholt)

  • Þegar öll börnin eru vöknuð og komin fram kl 6.20 á aðfangadag

  • „Pabbi, mér er illt í hausverknum“

  • Klukkan er 5.35 að morgni. Hálfsofandi faðir fylgir 5 ára dóttur á salernið. Situr á baðkarsbrún og reynir sem best hann getur að dotta ekki og velta ofan í baðkarið. „Pabbi ég er alltaf að reyna að smella puttunum en get það aldrei“

  • Telma: „Grillar mamma jólasveinana?“ Pabbi: „Haaa? Meinarðu til að borða þá?“ T: „Grýla er mamma jólasveinanna!“

  • Hugmyndir að skemmtilegu: Á köldum vetrardegi er tilvalið að finna byggingu sem er ekki upphituð heldur kæld niður. Sitja þar í klukkutíma og horfa á lítið fólk sem er ekki flínkt á skautum (enn)

  • Horfum á jóladagatal Fimm ára barn: „Gerðist þetta í alvörunni?“ Ég: „Nei ástin mín, jólasveinninn er ekki til, hahaha!“ Börn: *gráta*