Tag: Telma

  • „En hvernig varð Jesúbarnið frægasta barnið?!? Það er bara barn!!?“

  • Telma: „Pabbi, hún er ekki að segja sviss sviss biss!“ Pabbi: „Núú!? Hvað er hún þá að segja“ T: „Sviss sviss bits!“ P: „Jedúddamía!?“

  • nös á ketti

    Telma setur tvær skeiðar af hrísgrjónum og litla flís af kjúkling á diskinn. Pabbi er ekki impóneraður: *hnuss* „Þetta er ekki upp í nös á ketti!“ T: „Júts!! Veistu hvað nös á ketti er lítil?“ *sýnir* Sandra: „Hver setur kjúkling í nös á ketti?“

  • Þrjú börn: „Pabbi, megum við fá heitt kakó?!“ Pabbi: „Jájá. Ég var að kaupa nýja dós. Bara ekki setja allt of mikið“ 3b: „Vei! Við getum sko alveg sjálf!“ Pabbi: *lítur undan í 3 mínútur*

  • Díll aldarinnar

    Sandra og Telma suða um að fá að fara í sjoppu að kaupa nammi: „Pabbi, þú mátt eiga peninginn sem við fáum til baka!“

  • Nær

    Pabbi byrjar að vaska upp eftir kvöldmatinn. Telma er ekki búin að borða: „Heyrðu! Ég ætlaði að vaska upp!“ P hættir að vaska upp: „Ó, fyrirgefðu!“ T: „Pabbi, hver er nær, sá sem situr beint á móti mér eða sá sem situr á ská á móti mér?“ P skilur ekkert: „Ööööö, sá sem situr beint…

  • Telma, nær sjö ára, veik í heimspekilegum pælingum: „Af hverju heitir þetta OSTAhnífur? Það er hægt að nota þetta til að skera allskonar!“ Pabbi: „Er það?“ T: „Já, kartöflur! Og gulrætur!“ P: „Og melónur?“ T: „Nauts! Ekki melónur!!“

  • Að fara í hangman með sex ára stúlku með gubbupest getur verið áhugavert: ískábur, fristiskápur, gubuskál, æla og rós (sem misritaðist óvart)

  • Efforð

    Stelpurnar vöknuðu í nótt og voru klukkutíma að sofna aftur. Þær fóru í kapp niður til að kíkja, og byrjuðu strax að hnakkrífast og öskurgrenja Efforðið, Stekkjastaur, fokkings efforðið á þig

  • „Ég gat þetta allt, nema ég veit ekki hvort þetta í miðjunni er hollt!“ Telma, sem verður sjö ára í febrúar og HEFUR ALDREI SÉÐ TOBLERONE

  • Pabbi reynir að lesa Madditt fyrir háttinn. Telma (næstum 7): „Pabbi, hvað ef fyrsta manneskjan sem fæddist var strákur?“ Pabbi: „Góð spurning! En hvernig fæddist fyrsta manneskjan?“ T: „Sko, fyrst var sandur, sem breyttist í stein og svo pöddu og svo mús og svo fisk og svo kom api og svo breyttist hann í mannfólk!“

  • Stelpurnar fá næstum aldrei tyggjó og finnst það merkilegra en gull. Í morgun laumaði afi þeirra að þeim tyggjói þegar enginn sá til. Rúmum tveimur tímum síðar er Telma ekki búin að fá sér morgunmat því hún tímir ekki að henda tyggjóinu