Tag: siggi klúðrar stöffi

  • Hanukkah

    Ég: Jú, kynslóðin mín er fyrsta kynslóðin sem náði almennilega að fóta sig á netinu. Margir af eldri kynslóðum eiga fullt í fangi með þetta allt saman Líka ég: Breytti þemanu í FB Messenger spjallinu við konuna mína óvart í Hanukkah og var í tvo daga með Menorah sem þumal

  • Stytta biðina

    Þegar þú ferð með börnunum út í fótbolta á aðfangadag til hjálpa þeim að að stytta biðina, en endar svo á því að dúndra boltanum í smettið á dóttur þinni og brjóta gleraugun hennar

  • Pizza

    Note to self: Næst þegar þú ætlar að geyma kanil í kryddstauk sem stendur á Pizzakrydd fyrir krakka, skaltu muna að skrifa KANILL með mjög stórum stöfum Ok, lítur ekki út fyrir að þetta sé milljón króna hugmynd Krakkarnir sökuðu mig um að reyna að drepa sig Konan hefur reyndar aldrei borðað svona mikið af…

  • Ef þér líður einhvern tíma illa yfir frammistöðu þinni í eldhúsinu máttu vita að til er fólk sem hefur klúðrað pakkasósu þannig að hún varð kekkjótt (Við munum ekki nefna þetta fólk á nafn, til þess skammast ég mín allt of mikið)

  • Tannálfurinn

    Telma: „Hey! Ég gleymdi að kíkja undir koddann í morgun til að sjá hvað ég fékk frá tannálfinum!“ Pabbi: *svelgist á kornflexi. lítur skelkaður á mömmu, sem horfir döpur í gaupnir sér* Sandra: *horfir ásakandi á foreldra sína og hristir höfuðið* T: *kemur niður aftur. leið* S: „Tannálfurinn er í sóttkví!“

  • Þegar þú ert í skýjunum með noise canceling heyrnartólin þín og finnst geggjað að nota þau á fjarfundum þar til þú kemst að því að þó þú heyrir það ekki heyra vinnufélagarnir allt sem er að gerast í Friends þættinum sem dóttir þín er að horfa á. Líka þegar einhver sturtar niður

  • Bíó

    Þegar þú spyrð börnin hvort eigi að fara í bíó áður en þú tékkar hvað er í boði … … ekki einu sinni Bersi kunni að meta þetta helvíti

  • D-vítamín

    Ég: Skil ekki alveg hvernig ég gat endað með alvarlegan d-vítamínskort þegar ég er bara frekar duglegur að taka lýsi ? Líka ég: Ó

  • Trackpad á fartölvunni hættur að virka. Control panel. Fikt. Ekkert. Gúggl. Uppfæri drivera. Restart. Ekkert. Meira Gúggl. Driverar beint frá framleiðanda. Restart. Ekkert. Enn Gúggl. Ekkert. Þrír klukkutímar. Ekkert. Hmmm, hvað gerist ef ég ýti á þennan takka..?

  • Gleymdi að það væri dótadagur á leikskólanum hjá pjakknum í dag Nú veit ég hvernig kúk líður

  • Tappi

    Þegar þú ætlar að skrúfa tappann af lýsisflöskunni nema þú varst búinn að því og fingurnir á þér munu lykta eins og lýsi til eilífðarnóns

  • Þegar þig svíður í augað af því þér tókst einhvernveginn að pota tannburstanum í augað á þér við burstun