Tag: pabbabrandarar

  • …ooooog verðlaunin fyrir langbestu skjáauglýsinguna hlýtur Mitsúbissí átlander pjú

  • Leyfið bönunum að koma til mín og barnið þeim það ekki

  • hryggskekkjan er uppáhalds ekkjan mín

  • Vinn að haute couture útgáfu buffsins fyrir tískusnobbara Ég kynni „le boeuf“

  • Ég á Leaf

    Lagði ég af stað í það langa ferðalagÉg áfram gekk í villu eirðarlausHugsaði ekki um neitt, ekki fram á næsta dagEinveru og friðsemdina kaus Ég á Leaf, ég á Leaf, yfir erfiðleika sveafÉg á Leaf, ég á Leaf vegna þeanÞegar móti mér blæs, yfir fjöllin há ég kleafÉg á Leaf, ég á Leaf, ég á…

  • Bíddu, var það ekki Pálmi Gunnars sem söng: Ég elska þigþótt þú sért úr, Steini Pálmi Gunnars? og söng hann ekki líka: Hvers vegna varst’ekki skyr? Pálmi Gunnars? Eða var það: Hvers vegna varst’ekki kýr? Pálmi Gunnars?

  • Einhverra hluta vegna tekur fólk það óstinnt upp þegar ég segi þeim að barnið þeirra sé ljótara en barnið mitt

  • Þá kom Þorgeir og var með gorgeir

  • Uppáhaldið mitt á sunnudagsmorgni er að bjóða börnunum upp á AB mjólk með músínum og rúslí

  • Tölvup00F3stur

    Fékk tölvup00F3st frá Reykjavík!

  • Sé að stelpurnar hafa komist í leiðbeiningarnar sem ég skrifaði í æsku um hvernig ætti að leysa töfrateninginn I see the girls have found the instructions I wrote as a kid on how to solve the Rubik’s cube