Tag: íslenska

  • Ást er…

    Verður reglulega hugsað um sjónvarpsþýðandann sem fannst góð hugmynd að þýða “Love is a four letter word” sem „Ást er fjögurra stafa orð“

  • Flott tölva

    Þegar Barbí á flottari tölvu en þú

  • Gaur: „Gætirðu sagt okkur hvernig eru danskir fingravettlingar eru búnir til?“

    Fingravettlingagerðarmaður: „Tja, ég veit ekki hvernig aðrir gera, en ég handsker þá“

  • eff æ ar í æ en sí ei æ ar ó

    Man enn gæsahúðina sem ég fékk í Húnaveri verslunarmannahelgina ’89 þegar ég gekk fram á einhvern snilling með Standing on a Beach í gettóblasternum

    Spáið í að gera þessa plötu árið 1985!

  • Ekki segja

    Bekkjarsystir Telmu kom heim með henni eftir skóla í gær. Mikið fjör, mikil læti.

    Hlutirnir voru aðeins teknir að róast þegar henni verður litið út um gluggann og rekur upp skaðræðisöskur. Fyrir utan var bíll að keyra upp að húsinu.

    Hún hljóp öskrandi upp á efri hæðina: „EKKI SEGJA PABBA HVAR ÉG EEEEEEEERR!!!!“

  • Fjör í verkfalli

    Pt. i

    Albert: *opnar frystinn* „Má ég fá ís?“

    Pabbi: „Nei“

    A: *mikil vonbrigði. mikið hugsað*

    A: „Pabbi … ekki horfa!!“

    Pt. ii

    Albert: *horfir heillengi á Hvolpasveit*

    Pabbi: *læðist til og kveikir á vinnutölvu, vinnur aðeins*

    A: *kemur* „Akkuru er ljós hér? Hvað er þessi takki?“ *ýtir*

    Vinnutölva: *slekkur á sér*

    P: *vaskar upp*

    A: *leikur sér heillengi aleinn*

    Pt. iii

    Í kjörbúð

    Albert: *raðar vörum á færibandið*

    A: *horfir löngunaraugum út í loftið, dæsir*

    A: „Mig langar mjög svo mikið í papriku!“

    Pt. iv

    Albert:„Ég er svona gamall!“ *heldur uppi hönd í þykkri lúffu*

    Pabbi: ?

    A: „Ég er bráðum svona gamall!“ *heldur uppi hönd í þykkri lúffu*

    Pt. v

    Albert: *klæðir sig úr sokkum. Skoðar tærnar mjög vandlega*

    A: *bendir á miðtána* „Er þetta fokkjú tá?“

    [nokkrar mínútur]

    A: *kjagar um*: „Ég elska ekki að segja fokkjú“

    Pabbi: „Jæja góði“

    A: „Ég elska ekki að segja fokkjú“

    Pt. vi

    Albert á stigapalli: „Akkuru hér stigi upp og hér stigi niður?“

  • Vinkona kom heim með dóttur minni í gær. Mikið fjör, brjáluð læti. Svo þegar aðeins var farið að róast sá stúlkan bíl keyra upp að húsinu. Hún rak up skaðræðisöskur, stökk upp og hljóp upp á efri hæðina, gargandi: „EKKI SEGJA PABBA HVAR ÉG EEEEEEEERR!!!!“

  • Klaki

    Þegar von er á gestum þarf að klakahreinsa.

    Það var bæði mun erfiðara og töluvert skemmtilegra en ég átti von á

  • 18 ára

    Vakandi til miðnættis yfir bjór & The sixth sense á RÚV.

    Líður bara eins og ég sé 18 ára aftur!

  • KSÍ?

    Yfir fréttum: „Pabbi, hvað er KSÍ?“

    Pabbi: *útskýrir*

    Barn: „Knakk Birnu Samband Íslands?“

  • Skæri

    Pabbi: „Hvar eru skærin?“

    Dóttir: „Uppi. Það var einhver að klippa sófann!“

  • Art lover

    Listunnandi dáist að listaverki stóru systur

    Art lover admiring big sister Sandra’s work of art