Í veðurfréttum er þetta helst: Firefox

Í veðurfréttum er þetta helst: Firefox
Blár dagur. Pabbi talar um af hverju allir eru að klæða sig í eitthvað blátt.
Dóttir: „Hvað er einhverfa?“
Pabbi: *Reynir að útskýra einhverfu*
P: „Manstu eftir Palla? Hann er einhverfur!“
D: „Er Palli alltaf í bláum fötum?“
Barn: *horfir á einhverja þrautleiðinlega bíómynd* „Sjáðu pabbi, pabbi sjáðu!“
Pabbi: *horfir*
B: „Sjáðu pabbi, pabbi sjáðu!“
P: *horfir*
B: „Sjáðu!“
P: *blikkar*
B: „PABBI! HORFÐU ALLAN TÍMANN!“
Forráðamenn MS og SS:
Ég: „Þið eruð eflaust að velta fyrir ykkur hvers vegna ég boðaði ykkur á minn fund, en þannig er mál með vexti að ég sé frábær tækifæri í sameiningu fyrirtækjanna, ekki síst í nýjungar í pylsugerð“ *sýnir skilti sem á stendur: „Emmessessess Skyrbjúgu!“
Nýja uppáhalds lagið mitt:
Sprek, sprek, sprek, sprek!
Hæ Sámur
Sprek, sprek, sprek, sprek!
Sprek, sprek, sprek, sprek!
Spreki spreki sprek sprek!
Sandra (átta ára) kveikti á nýjasta þættinum af Hæ Sámur áðan og horfði svo bara á mig til að sjá viðbrögðin
Þegar borgarstjórinn hættir tekst honum vonandi að láta gamlan draum rætast og opna bar.
Ég veit um nokkra sem yrðu fastagestir á Dagskrá
Klukkan er 08:09. Ég hef nú setið í klukkutíma og vonast til þess að þetta sé síðasta skiptið sem dóttir mín hlustar á Katy Perry – Roar
Ljón veiðir gasellu: Ó nei, hjarta mitt springur! Getur ekki einhver bjargað vesalings dýrinu?!
Hvalur á stærð við strætisvagn gúffar í sig 100kg af síld í einum munnbita: Vá hvað þetta er falleg sjón!
Albert: „Epli! Hæ Sámur!“
Pabbi: *Gefur epli og velur þátt af Hæ Sám af handahófi í Sarpinum*
A, tæpra þriggja vetra, áður en þátturinn svo mikið sem byrjar: „Nei, ekki daugur! Uppgera!“
P: „Afsakaðu ungi maður! Auðvitað langar þig frekar að horfa á þáttinn um uppskeruna en þáttinn um drauginn“
Taka börnin með í Sorpu, kostir og gallar.
? Þau læra að allri þessari neyslu fylgja neikvæðar hliðar, þau taka þátt í heimilisstörfum.
? „Pabbi, af hverju eru myndirnar sem ég var að teikna í gámnum? Ég var ekki búin að henda þeim?!?“
„Eigum við að fara í svona leik þar sem má bara segja nei?“
„Nei“
Hafa verið gerðar rannsóknir á tíðni slysa af völdum snúruinndragara á ryksugum?