Tag: íslenska

  • Orðabók

    Albertsk-íslensk orðabók fyrir þá sem mögulega þurfa að umgangast son minn:

    • krakkút – traktor
    • kakk – takk. dæmi: „kakk fi mi“
    • Ambett – Albert. dæmi: „nei! é, Ambett!“
    • mlókk – mjólk. dæmi: „Ambett fá serús me mlókk“
    • amma lída! – afmæli/ afmæli í dag. alltaf sagt ef einhver er með kórónu og aðeins þá
    • klatt úti – eitthvað er kalt. ekki endilega úti
    • póst! – stopp! dæmi: „póstaðu pabbi! bíllinn koma!“
    • júpúp – youtube / ipadinn er batteríslaus. dæmi: „pabbi, bílað júpúp æpaddinn!“

    Uppfært, því þessu má ekki gleyma:

    • renniblaut – rennibraut eða rennblaut, fer eftir aðstæðum

    2. bindi

    • pening – lykill. dæmi: „má fá pening“ (má ég fá lykilinn?)
    • ítar – gítar
    • Possasei – Hvolpasveit
    • tondisor – televisor (sjónvarp á lettnesku). Dæmi: „Horra Possasei tondisor“
  • Ingólfur

    Þú getur ekki heitið Ingólfur án þess að heita gólf

  • Goals

    death goals

  • Tölvupóstur

    Sef ekki fyrr en mér tekst að senda tölvupóst með freknur

  • beittur

    The Latvian phrase for "sharp knife" is "ass nazis"
  • Panta pizzu: Mmmmm, nammi namm, nóg handa öllum! Jafnvel nokkrar sneiðar til að maula á morgun

    Panta pizzu svo börnin heyri til: Bíddu, hvaðan koma öll þessi börn og hver á þau? Jess! Ég náði einni sneið og íbitinni brauðstöng. Er til cheerios?

  • Góðan daginn. Ég heiti siggi mús og ég á við drykkjuvandamál að stríða

  • Ég er aðeins hattur í lúdói æðri máttarvalda

  • Úff hvað væri nú skrýtið að vakna upp við að vera búinn að eyða hálftíma af vinnudeginum í að horfa Hæ Sámur á netinu.

    Sjiiii hvað væri skrýtið

    Ef það hefði gerst sko

  • Klukkan er 6:23.

    Glaðbeittur ungur (tveggja og hálfs) maður sem nýverið tókst að „krivva“ upp í rúm foreldra sinna gefur út yfirlýsingu: „Pabbi, é búinn lúlla!“

  • Tvífarar

    Sandra: „Allir eiga tvífara sem er alveg eins og þau!“

    Telma: ? „Tvífarinn minn á heima á Mars og heitir Mars Meló“

  • Sumar

    Sumir vilja meina að það sé komið sumar ?

    Albert segir að það sé komið sumar