„Ef jólasveinninn er alltaf að fylgjast með manni, þá er hann líka að horfa þegar maður fer á klósettið! Hann getur séð einkastaðinn!“
Tag: íslenska
-
Mikið frost?
Pabbi, við sjálfan sig: „…og nú eru þau að spá nítján stiga frosti á sunnudaginn“
Telma: „Er það mikið?“
P: „Jaá, það er soldið mikið“
T: „Nei! Veistu hvað er mikið?“
P: „?“
T: „Þúsund stiga frost“
-
Horfa
Albert: *labbar í stofunni*
Pabbi: *er í eldhúsinu að vaska upp. Lítur um öxl*
Albert *öskurgrenjar*: „Hættu! Pabbi má ekki horfa mig!“
-
Celine Dion
Hjúkrunarfræðingur: „Fékkstu miðana á Paul McCartney?“
Ég: *kúgast*
Læknir: *horfir á skjáinn* „Nei það var uppselt.“
Ég: *anda rólega*
Læknir: „En var ég búinn að segja þér að við förum á Celine Dion eftir tæpt ár?“ *ýtir slöngunni enn lengra ofan í kokið á mér*
Nurse: “Did you get the tickets for the Paul McCartney concert?”
Me: *gagging*
Doctor: *watches screen* “No, it was sold out”
Me: *breathing calmly*
Doctor: “But did I tell you we’re going to see Celine Dion in December next year?” *pushes tube even further down my throat*
-
Þegar þetta dugði ekki til að vinna jólapeysukeppnina í vinnunni fyrir fjórum árum hætti ég að taka þátt

Mitt besta framlag í jólapeysukeppni nokkru sinni Dómaraskandall
-
Orð sem ríma
Albert: „Pabbi! Ég veit um orð sem ríma!“
Pabbi: „….?“
Albert: „Búkur og kúkur!“ *dettur í gólfið og veltist þar um af hlátri*
-
Albert: „Pabbi halda mér“
Pabbi: „Nei, pabbi þreyttur“
A: „Jú, pabbi halda!“
P:
A: „Eeeeeeinn! … “ *setur upp þumalfingur*
P:
A: *horfir stíft á föður sinn, veifandi ógnandi þumli*
P:
A: „… tveeeeeir…“ *vísifingur bætist við*
Pjakkur: „Pabbi halda mér“
— siggi mús (@siggimus) December 1, 2019
Pabbi: „Nei, pabbi þreyttur“
Pj: „Jú, pabbi halda!“
Pa:
Pj: „Eeeeeeinn! … “ *setur upp þumalfingur*
Pa:
Pj: *horfir stíft á föður sinn, veifandi ógnandi þumli*
Pa:
Pj: „… tveeeeeir…“ *vísifingur bætist við* #pabbatwitter

