Tag: íslenska

  • Starfsmaður á auglýsingastofu: „…og hvað viltu auglýsa?“

    Auglýsandi: „Nám“

    Sáa: „Ok. Nám í hverju?“

    A: „Vel skipulagt nám!“

    Sáa: „En hvað?“

    A: „Skemmtilegt nám!“

    Sáa: „En hvað lærirðu?“

    A: „Hentugt nám!“

    Sáa: „En hvað kennið þið?“

    A: „Allt í fjarnámi!“

    Sáa: …

    A: „Lögfræðingur!“

  • Á leikvelli með fjögurra ára pjakk. Taktföst tónlist í fjarska.

    Albert: „Eridda begæ?“

    Pabbi: „Begæ? Ég veit ekki hvað það er?“

    P: ? ? ? ? ? ?

    P: ? „Me… meinarðu Bad guy?“

  • Litli gluggaþvottamaðurinn

  • „Öllum umsækjendum verður svarað þegar gengið hefur verið frá ráðningu.“

    …með smáauglýsingu.


    https://twitter.com/asdiso/status/1290220154190614529
  • Þegar sófinn er upptekinn og pabbi þarf að sitja á gólfinu

  • Pabbi: „Ég er í sjokki!“

    Albert: „Ég er í sokki!“

    P: „Nei, þú ert einmitt ekki í sokki! Þú ert ekki búinn að fara í einn einasta sokk í allan dag!“

  • Hval

    Pabbi: „…gott er!“

    Albert: „Ég segi líka gott er“

    P: ?

    A: „Ég segi hval. Ekki þú?“

    P: „Neibbsí pepsí“

    A: „Segðu hval!“

    P: „Hval“

    A: „Jú! Þú segir líka hval!“

  • Albett: *klárar morgunmat* „Ég ætla að vaska upp!“

    Pabbi: „Frábært!“

    Líka pabbi: *hleypur og bjargar uppvaski gærkvöldsins frá því að vera „vaskað upp“ aftur*

  • Ég er ekki að segja að mér sé farið að leiðast eftir tvær vikur einn heima með öll börnin, en vissuð þið að það er til púsluforrit í Windows og það er hægt að velja að púsla 600 púsla púsl?

  • Pabbi: „…ég fer niður og set grautinn þinn á disk“

    Albert: „Disk? Pabbi, það á að segja skál!“

  • Þenx

    Telma (8): „Pabbi, hvernig skrifar maður þenx?“

    Pabbi: *lítur upp, opnar munninn…*

    Albert, nýorðinn fjögurra ára: „i eff i ú!“