Tag: íslenska

  • Albert: „Pabbi, sjáðu hvað ég var að telja: Einn, tveir, frír, fjórir, fimm, sex, sjö, átta!“

    Pabbi: „Já, en þetta er alveg rétt!?“

    A: ? „En er ekki neitt fimmtán?!?“ ?

  • Pabbi: *les fyrir Albert og breiðir svo yfir hann* „Góða nótt!“

    Albert: *veltir af sér sænginni* „Ég vil ekki gatsæng! Ég vil réttsæng!“

    P: *? déjà vu ?* „Ööööö, þú getur sko lagað sængina sjálfur!“

    A: „Pabbi, ég vil ekki heyra svona tal!“

  • Hvað er í gangi!

    Morgun. Pabbi og Albert niðri. Borða hafragraut

    Stelpurnar uppi. Læti.

    A: *leggur frá sér skeiðina* „Ég ætla upp að segja hvað er í gangi!“

    A: *plomp plomp plomp plomp* „HVAÐ. ER. Í. GANGI?“

  • Pabbi reynir að fá Albert til að klæða sig fyrir leikskólann.

    Albert: „Ég kann ekki!“

    Pabbi: *potar í augað eins og kjáni. Setur sokkinn á eyrað á honum*

    A: „Pabbi af hverju ertu klaufi og veist ekki hvar sokkana eiga að fara?“

  • Af og til þarf að minna Albert á að horfa ekki á ljót vídeó, t.d. þar sem er verið að keyra yfir hluti

    Albert: *sýnir* „Pabbi, er þetta ljótt?“

    Pabbi: „Nei, ég held ekki“

    A: „En ef maður ýta á sturta þá er ekki lengur til kötturinn!“

  • Iðnaðarmaður, sitjandi klofvega á mæni hússins, kallar niður: „Sigurður, er bíllinn minn nokkuð fyrir þér?“

    Pabbi: „Neinei!“

    Albert: „Af hverju sagði hann Sigurður?“

    P: „Af því ég heiti Sigurður“

    A: ? ? ?HEITIRÐU EKKI PABBI?? ? ?

  • Íbúð til sölu

    Glæný, mjög sjarmerandi 1.040 fersentimetra íbúð á besta stað, við norðurenda borðstofuborðsins, með óviðjafnanlegu útsýni yfir Esjuna.

    Innbyggt sjónvarp, fartölva og rúm. Aðeins 120 cm í næsta ísskáp.

    Arkitekt: Sandra

  • Tengi


  • Enskumælandi börn í heimsókn

    Pabbi: „Stelpan er fjögurra ára eins og þú, en hún talar ensku eins og Peppa pig. Viltu prófa að tala við hana?“

    Albert: *roðnar og hristir höfuðið*

    … tvær mínútur…

    A: *réttir Bersa* „This is Marshall!“

  • Dóttir: „…hvað heitir hann?“

    Pabbi: „Frikki“

    D: *hneyksluð* „HEITIR HANN FRIKKIN’?“ ? ? ?

  • Albert situr inni í stofu að leika sér, aleinn: ? „Æma bits! Æma boss! ? Æma bits æma boss æma bits æma boss!“ ?

  • Fréttir: „… með áherslu á að kennsla raskist sem minnst“

    Albert: „Rass kysst!“ ? ? *flissar í 10 mínútur*