Tag: íslenska
-
ÞAÐ ER HÆGT AÐ ÞUMLA ÞUMLA! ÞAÐ ER HÆGT AÐ ÞUMLA ÞUMLA Í MESSENGER!! ég endurtek: ÞAÐ ER HÆGT AÐ ÞUMLA ÞUMLA Í MESSENGER!! ég er kominn með nýtt hobbý!
-
Þurfti að skjótast í svona klukkutíma Þegar ég kom aftur kom pjakkurinn grátandi út: „Pabbi, ég saknaði þín! Ég saknaði þín svoooo mikið!“ Svo hoppaði hann upp um hálsinn á mér og knúsaði mig eins og hann hefði ekki séð mig í mánuð. Og ég fékk eitthvað í augað
-
Pabbi bardúsar í eldhúsinu Albert, smá veikur inni í stofu: „Já! Nú veit ég hvernig á að gera graut!“ P: *kíkir inn í stofu* A: *situr og horfir á Stundina okkar þar sem börn kenna okkur að gera hafragraut með eplamús* Pabbi bardúsar enn í eldhúsinu Albert, smá veikur inni í stofu: „PABBI!“ P: *hleypur…
-
Þurfti að sækja Albert snemma á leikskólann því hann er kominn með hita. A, á leið út í bílinn: „Veikurið lét mig sofna eins og litlabarn!“
-
Eyði meiri tíma en ég kæri mig um að viðurkenna í vangaveltur um hvort líkindin með barnvænt og banvænt hafi einhvern tíma valdið veseni
-
Rúgbrauð með papriku og krakkavítamíni
Þegar Albert biður um rúgbrauð með papriku og krakkavítamíni fær Albert rúgbrauð með papriku og krakkavítamíni Og þegar Albert biður um meira rúgbrauð með papriku og krakkavítamíni fær Albert meira rúgbrauð með papriku og krakkavítamíni
-
Tannálfurinn
Telma: „Hey! Ég gleymdi að kíkja undir koddann í morgun til að sjá hvað ég fékk frá tannálfinum!“ Pabbi: *svelgist á kornflexi. lítur skelkaður á mömmu, sem horfir döpur í gaupnir sér* Sandra: *horfir ásakandi á foreldra sína og hristir höfuðið* T: *kemur niður aftur. leið* S: „Tannálfurinn er í sóttkví!“
-
Til hannyrða
-
Ok Swiftkey
-
Ok Swiftkey
-
Pabbi: „Var gaman í leikskólanum?“ Albert: *muml* P: „Varstu að róla?“ A: *muml* P: „Varstu í bíló?“ A: „Nauts!“ *hneykslaður* „Pabbi, það er fjólublár dagur! Bíló er bara þegar er appelsínugulur dagur!“
-
Þegar þú ert í skýjunum með noise canceling heyrnartólin þín og finnst geggjað að nota þau á fjarfundum þar til þú kemst að því að þó þú heyrir það ekki heyra vinnufélagarnir allt sem er að gerast í Friends þættinum sem dóttir þín er að horfa á. Líka þegar einhver sturtar niður