Albert: „Má ég fara æpaddinn?“
Pabbi: „Þú veist að þú mátt ekki fara í Among Us?“
A: „Ég ætla ekki að fara í Among Us“
P: „Hvað ætlarðu þá að fara í?“
A: „Fyrst fer ég í eitthvað annað og SVO í Among Us!“
Albert: „Má ég fara æpaddinn?“
Pabbi: „Þú veist að þú mátt ekki fara í Among Us?“
A: „Ég ætla ekki að fara í Among Us“
P: „Hvað ætlarðu þá að fara í?“
A: „Fyrst fer ég í eitthvað annað og SVO í Among Us!“
Það lítur út fyrir að Albert sé búinn að læra litlu stafina líka
/looks like Albert has learnt the lower case letters as well
Adam átti syni sjö
??
sjö níu átta Satan!
Lesum bók um líkamann, m.a. skynfærin fimm
Pabbi: „Til hvers notum við augun?“
Albert: „Til að horfa!“
P: „Til hvers notum við puttana?“
A: „Til að pota!“
P: „En nefið?“
A: „Til að snýta!!“
Eftir þrotlausar rannsóknir hefur Albert, fjögurra ára, fundið alla stafina sem hægt er að gera með kommu.
Og ess
og hér er hann að kenna Telmu, nær níu ára gamalli systur sinni að gera ? og &
Lesið fyrir háttinn
Í bókinni er talað um tennur
Albert: „Ég er með miklu fleiri tennur en Sandra og Telma!“
Pabbi: „Núúú? Af hverju?“
A: „Þær eru búnar að missa margar tennur, en ég er ekki búinn að missa neina!“
Pabbi: „Albert, hvað viltu gefa systrum þínum í jólagjöf?“
Albert: „Blóm!“ … *hleypur og grípur kaktus* „Þetta blóm!“
A: „Nei, blóm er bara fyrir Telmu! Þetta er fyrir Söndru“ *kemur með tuskudýrs-hund sem er búinn að vera á heimilinu lengur en hann sjálfur*
A: *nær í blað* „Hvernig skrifar mar glevi jól?“
í bíltúr
Albert: „Sjúkrabíll og brunabíll! Einhver var að meiða sig og það var eldur“
Pabbi: „Já?“
A: „Kannski var einhver með eld og sykurpúða og potaði í eldinn og meiddi sig!“
PSA: Ef þér þykir vænt um augun þín, ekki sjúga hálsbrjóstsykur með menthol rétt á meðan þú ert með grímu
Albert (4): „Pabbi, hvernig skrifar maður am grúmet?“
Pabbi: „Am hvað?“
A: „Æm krúmet“
P: „Am krúmet? Lommér sjá“
A: „Æm krú-met“
P: „Ahhhh, ertu í Amonngöss!?? I emm bil sje err e tvöfaltvaff emm a té e“
úfur í sauðagæru?