
Neinei, ekkert merkilegt, bara Telman mín að mála alveg geggjaða mynd ![]()
![]()
Verður reglulega hugsað til parsins sem gekk um IKEA, stoppaði svo, benti á eina uppstillinguna og sagði „Þetta er nýtt!“
Albert horfir á dagatal hugsi … „Átjánda apríl var búið til krossið!“
„…Nítjánda var Jesú að vakna…“
„Tuttugasta var hann Jesú svo festur á krossið“
Húsdýragarðinum
Albert: „Förum heim“
Pabbi: „En við eigum eftir að sjá hreindýrin“
A: „Ég er búinn að sjá hreindýr og það var ljótt!“
Pabbi talar um eitthvað sem gerðist í gærkvöldi.
Albert: „Það var ekki í gær! Það var á morgun!“
Pabbi: „Ég sá það með berum augum!“
Öll börnin: ??
Albert: „Eru augun þá ekki í buxum og húfu?“
Ég vil þakka syni mínum, nær sex vetra, fyrir skorinorðar leiðbeiningar um hvernig „what the heck” skal borið fram
Albert: „Komdu!“
Pabbi: „En ég er ennþá að borða!“
A: „Geymdu það!“
P: „Hvert á ég að koma?“
A: „Með mér!“
A: *leiðir pabba upp á efri hæð*
P: „Og hvað..?“ ![]()
A: „FYRSTI APRÍL!!!“ ![]()
![]()
Í bíl.
Albert: „…í framsæti og líka í … ? hérna, sætið fyrir aftan“
Pabbi: „Það heitir aftursæti“
A: „AFTURsæti? Af hverju heitir það aftURsæti? Er það aftur og aftur? NEI! Það er FYRIR AFTAN! Það á að heita AFTANsæti“
Úti að labba með Albert á hjóli og Húgó í taumi
Það gekk ekki aaaaalveg eins og í sögu og ég var aðeins að byrja að pirrast þegar Albert stoppaði, leit á mig, brosti og sagði: „Mér finnst gaman í lífinu mínu!”
Ég held ég hafi fengið eitthvað í augað