hvaða fyrirbæri er nú þetta?

karl faðir minn, sem verður níræður þarnæsta haust, segir að þetta sé kallað „skuggi“
hvaða fyrirbæri er nú þetta?
karl faðir minn, sem verður níræður þarnæsta haust, segir að þetta sé kallað „skuggi“
Eftir erfiða búðarferð er gott að tylla sér niður smástund
Telma raular nýja uppáhaldslagið sitt:
skeið skeið skeið
-Telma
skeið
skeið skeið skeið
skeið skeið
skeið skeið skeið
„Telma! Þú færð eitt tækifæri! Annars færðu límmiða!”
Sandra elur litlu systur upp
(mögulega er hún að misskilja eitthvað agaprógrammið á leikskólanum)
Hæ þú!
Mundu að sá sem ekki notar atkvæðisréttinn afsalar sér réttinum til að rífa kjaft yfir ástandinu
Kjörsókn er enn minni en síðast.
Ég ætla ekki að segja þér hvað þú átt að kjósa. En ég ætla að segja þér að konan mín er frá Lettlandi og hún hefur kennt mér að það er ekki í boði að sitja heima eða skila auðu þegar í framboði er vont fólk eða fólk með vondar skoðanir (nú eða fólk sem þykist hafa vondar skoðanir til að veiða atkvæði).
Og mundu að sá sem ekki notar atkvæðisréttinn afsalar sér réttinum til að rífa kjaft yfir ástandinu.
Í dag hefur Sandra sungið „Siggi var úti með ærnar í haga/ aumingja Siggi hann þorir ekki heim“ hárri raust.
Með þessu annars sakleysislega framferði sínu hefur barnið óafvitandi vakið upp gamlan draug hjá föður sínum.
Ég á von á martröðum í nótt og háum reikningum frá sálfræðingum á næstunni.
„Haha! Það er eitthvað sem labbar á puttanum mínum!!“ er tvímælalaust uppáhalds leiðin mín til að komast að því að roðamaur sé að gera sig heimakominn
Að borða hakkabuff með kartöflumús, brúnni sósu og tannlæknadeyfingu er mátulega góð skemmtun
Namminamm, þetta er ábyggilega svakalega gott á bragðið. Bíddu, var þetta hakkabuff eða tunga?
„Nei, Sandra, fiskur í RASPI!“
Fyrr í kvöld sagði önnur dóttir mín (ég segi ekki hvor!) við mig: „Pabbi, þú verður að læra að segja Sandra við mig og Telma við Telmu“
Earlier tonight, one of my daughters (I’m not saying which one!) said: “Daddy, you have to learn to call me Sandra and Telma Telma”