Tag: íslenska

  • Í bakarísleik vill dóttir mín bara selja mér eitrað kex.

    Mamman fær kjánakex

  • Á leið í leikskólann í morgun var verið að ræða ýmislegt sem má gera þegar maður stækkar:

    Pabbi: „..einmitt! Og þegar Telma verður stór eins og þú má hún líka gera svona!“

    Telma: „Ég vil ekki verða stór!“

    Sandra: „Þá verðurðu að hætta að borða lýsi!“

    T: „En ég vil ekki borða Lísu!“

  • Þegar þú reynir að hæfæva 5 ára gamalt barn þitt, en hún bara glottir og hristir hausinn

  • Engin skírn

  • Fyrir réttri viku setti ég köttinn á sérstakt grennandi fæði, að (dýra)læknisráði.

    Það litla sem ég sef þessa dagana er ég með amk annað augað opið

  • Þökk sé DR1 og tímaflakki er ég að horfa á forsögulegan Taggart — með sjálfum Taggart — Mark McManus!

  • Telma: „Ég steig ekki á tána þína, það var skórinn!!“

  • Búinn að eyða stórum hluta sumarfrísins í að skoða ryksugur

    Það er ekki eins skemmtilegt og spennandi og það hljómar

  • Þverfellshorn

    Héldum upp á barnlausan dag með því að klífa Þverfellshorn – sem er fyrir ofan Stein.

    Celebrated a childless day with a hike to Þverfellshorn – the top of mount Esja

  • Sú ólýsanlega gleði að uppgötva seinnipartinn að leikskólinn opnar ekki á morgun heldur hinn

  • „simmsimm simmsimm“

    -Telma um allar gular fígúrur, s.s. minions, gul m&m með andlit, og síðast en ekki síst, Svamp Sveinsson