Sveifla haka og rækta nýja skó?
Tag: íslenska
-
-
Sigur andans yfir efninu (les: sigur þrjóskunnar yfir letinni)
Ég fór semsagt frá því að vera sófahjassi par exelans í að verða týpan sem vaknar kl. hálfátta á sunnudagsmorgni til að „hlaupa“ í niðamyrkri á Ísafirði áður en ég bruna heim í höfuðborgina. Og týpan sem hættir ekki þegar slydduhaglið rennbleytir vinstri hliðina á honum, heldur fer bara aðeins aðra leið en venjulega, með skvampið í skónum í hverju skrefi
Og þetta tók bara þrjá fokkings mánuði
-
Albert spýtir snuddunni 15cm án atrennu. Vil ekki setja of mikla pressu á 4ra mánaða gamalt barn, en hann mun ná langt
-
Að spila hangman við 4 og 6 ára börn er athyglisverð skemmtun
Ekki hugmynd hvað Telma var að teikna, en ótrúlegt pepp í að fá broskall með hverjum réttum staf. Á endanum -
Af hverju segjum við ypsilon í en ekki ýpsilon?
-
Pínulítið
Annað hvort er hundur nágrannans kominn með ljós í ólina eða það var pínulítið geimskip að brotlenda fyrir utan gluggann hjá okkur
-
Skv. þessu á ég Facebook vin sem heitir Hverfisgata 12 og er hús
-
Af því ég veit þið voruð líka að velta því fyrir ykkur: Á ensku heitir Hænulína í Hvolpasveit Chickaletta
-
Hverjum hefði dottið í hug að birtingarmynd byltingar öreiganna væri appelsínugulur milljarðamæringur með fasíska tendensa?
-
Flokkur
Hvaða flokkur fer í þinn poka? Framsókn
-
Það er bara ein fokking regla — og það er að í skektu verður að vera negla
(annars sekkur hún sko)
-
Sit krókloppinn í 3° hita í skautahöll meðan einhver spilar öll uppáhalds jólalögin sín á 11