


var búinn að gleyma að ég fæ brjóstsviða af viskýi 🙁
Gömlu vinirnir að snæðingi
Á ferðalagi um heiminn er gott að stinga reglulega í samband við internetið til að senda af sér fréttir
Þetta köllum við legroom
Uppfært 16. október: Klúðraði heimleiðinni 🙁
Barn: „Hvað er nú þetta?“
Pabbi: „Ööööö, ég veit það ekki! Ja hérna hér! Ég hef barasta ekki minnstu hugmynd, ha! Komdu nú!“
Í heimi á heljarþröm eru þetta nákvæmlega fréttirnar sem maður vill heyra
Yfir Krakkafréttum:
Telma: „Gellan mörgæs?!“
Pabbi: „MAgellan mörgæs“
Stelpurnar sátu og skoðuðu Hvalasafns-appið. Sandra var að sýna Telmu og ausa úr sínum viskubrunni – það var sko hvalaþema nýlega í skólanum hjá henni.
Telma: „Steypirefur?“
Sandra: „Steypireyður!“
T: „Steypireður?“
S: „Steypireyður!!“
T: „Er hann alltaf reiður?“
Ég: Brjálaður þegar fyrirtæki svara ekki strax í símann.
Líka ég: Brjálaður þegar starfsmaður svarar í síma frekar en að afgreiða mig.