Tag: íslenska

  • Bjúgnakrækir

    Þegar Bjúgnakrækir gefur börnunum miða á Emil í skóinn og er svo hugulsamur að láta fylgja með miða fyrir pabba og mömmu


    Nú eru liðnir tveir dagar og börnin hafa enn ekki veitt því athygli að Bjúgnakrækir var m.a.s. svo hugulsamur að grafa upp fullt nafn pabba og láta prenta það á alla miðana


    PS: Það er ekki svo að börnin fái leikhúsmiða, snjallsíma eða bíla í skóinn á þessu heimili. Bjúgnakrækir átti einfaldlega á lausu gjafabréf síðan 2019 sem höfðu ekki verið leyst út, út af sottlu

  • Veðurkvíði

    Frá því þetta gerðist, í fyrstu rauðu viðvöruninni, hef ég þjáðst af e.k. veðurkvíða sem lýsir sér í því að ég fæ slæman kvíðahnút í magann þegar heyrist mikið í veðri. Gjarnan sef ég lítið og illa

    Í dag er aftur rok, og Ance fannst erfitt að horfa upp á mig svona svo hún ákvað að gera tilraun með svolítið. Þegar ég fitjaði upp á nefið sagði hún: „Svona svona! Þetta virkar mjög vel á hundinn! Og þú … þið eruð báðir spendýr!“

    Það versta er samt að þetta helvíti virðist virka

  • Sem prófarkalesari og sérfræðingur í að reyna að spila við 6 ára barn get ég vottað: Engar villur hér

  • Hættu!

    Albert og Sandra voru að tuskast á

    Albert fékk nóg: „Hættu“

    Sandra hætti ekki.

    Albert: „Ég sagði hættu! Virðaðu það!“

  • Bölvupóstur

    Þegar þú skrifar óvart bölvupóstur.

    Þrisvar

  • Piparkökuhús

    Þegar börnin þín eiga tvö af þremur flottustu piparkökuhúsunum á föndurkvöldinu í skólanum ??

  • Bingó!

    Spennan er óbærileg

  • Barn 1: „Hvað sagði sushi-ið við býfluguna?“

    Barn 2: *yppir öxlum*

    B1: „Wasabi!“

  • Læknisleikur

    Skapandi börn í læknisleik

    Ég slysaðist inn á skurðstofu á versta tíma

  • Stúfur gafst upp

    Þegar Albert var búinn að lesa í gærkvöldi fletti hann nokkrar blaðsíður til baka í bókinni og las aftur

    „Stúfur gafst upp“!

    Hann leit á mig: „Í skólanum eru þau að kenna okkur að gefast ekki upp!“

    Í morgun tók hann bókina með til að sýna kennaranum

  • Einhvern tíma reyndi ég að heilla konu með því að segja henni að skv netfanginu héti hún eyrun


    Fengið að láni frá Lóaboratoríum
  • Einn af

    Einn af þessum dögum…