Hafiði heyrt um bakarann sem var svo illt í bakinu?
Tag: íslenska
-
-
Músarmotta
músarmotta -
Vík
Vík í Mýrdal? Meira svona Vík frá mér Satan, amirite?
-
Telma: „Pabbi, af hverju keyptirðu tannkrem sem er á bragðið eins og laukur?“
Pabbi: „Ööööö … ég hérna … mamma þín keypti það!“
-
Barbíkaka
Smá lettneskukennsla á fimmtudegi:
- Lettneska orðið fyrir köku er kuka
- Lettneska orðið fyrir kúk er kaka
Ég sendi eiginkonunni einhverntíma mynd úr barnaafmæli. Vildi sýna henni hvað tertan væri flott.
Skjalið hét barbiekaka.jpg
-
Evrópumet
Ance var að setja Evrópumet í að týna sjónvarpsfjarstýringu án atrennu
-
Hundrað
„Eftir hundrað mínútur … nei, eftir hundrað daga verðum við … nei, eftir hundrað daga verður þú dáinn“
-
Aðlögun
Þú veist að aðlögunin hjá barninu þínu gengur vel þegar öll börnin á leikskólanum nema eitt bíða í röð til að fá að leika við þig
-
Vottar Jehóva
fyrir óralöngu sat ég, drakk (allt of mikið) kaffi og las í Jobsbók þegar Vottar Jehóva knúðu dyra
hilarity ensues, eða þannig
-
Það er aksjúallí barn á leikskóla Alberts sem heitir Húbba!!
-
Þegar þú mætir með guttann í aðlögun á leikskóla og nýlegur starfsmaður, bekkjarsystir úr grunnskóla mælir guttann út, segir „Þú byrjaðir seint“ og fer að tala um ömmubörnin sín
-
Dökkklæddur maður með úfið hár situr þögull og hreyfingarlaus í rökkrinu með eyrun sperrt og bíður þess að 18 mánaða sonur sinn sofni.
5 mínútur. Ekkert hljóð.
Skyndilega heyrist mikill skarkali; eldri systur drengsins eru með háreysti frammi.
Út úr myrkrinu heyrist óánægjustuna og lágvært „usssssss!“