Vúpp vúpp!

Vúpp vúpp!
Í þessu tjaldi ætlar lítil hugrökk Telma að sofa í nótt. Hún hafði varla tíma til að kveðja foreldra sína áður en hún hljóp út, ásamt örlítið eldri frænku sinni og ömmu.
Á sama tíma situr Sandra og fléttar vinaband fyrir móður sína úr litlum gúmmíteygjum. Glaðvakandi og eldhress, enda svaf hún nær allan daginn til að jafna sig á því að gubba í gærkvöldi og nótt
Telma: „Ég veit af hverju ömmur og dáið fólk eru sett ofan í jörðina.“
Pabbi: „Nú? Af hverju er það?“
T: „Annars fyllist allt af dánu fólki og ömmum!“
Aðeins að skola skítinn af liðinu
Tilraun um að halda lífi í hitabylgju
Ekki útséð um að það takist
Kominn í 1,8 prómill skv þessu apparati
Á göngu í náttúrunni sjáum við drekaflugu.
Sandra öskrar af hræðslu.
Ance: „Þetta er allt í lagi, hún er góð!“
Sandra (næstum 8 ára): „Góð? Hvernig getur fluga verið góð? Gefur hún manni tyggjó?“
Ég, í maí: Af hverju er alltaf svona ömurlegt veður á Íslandi? Skítapleis!
Líka ég, eftir 20 mínútur utandyra í 26°c hita og logni: Fleeeeeee, gnnnnngh, mig langar að deyja!
Skemmtilegt töts að missa símann og það var ekki skjárinn sem brotnaði
Uppfært, ÞREMUR FOKKINGS DÖGUM SÍÐAR:
Tryði ég á forlögin væri ég nú bölvandi og ragnandi yfir því hafa storkað þeim
Dagur 1:
Mamma: „Stelpur, eruði búnar að borða?“
Ome/ amma: „Já, þær borðuðu hafragraut“
M: „En borðuðu þær eitthvað?“
O: „Jájá, ég sagði þið fáið ekki nammi fyrr en þið eruð búnar“
Auðvitað mundi ég að ég átti að byrja að taka andhistamín viku fyrir ferðina þegar ég heyrði suðið í fyrstu moskítóflugunni
Flugvellir: Vinsamlegast mætið 3 klst fyrir brottför
Líka flugvellir: Já nei, við opnum ekki check in fyrr en 2 klst fyrir brottför
Flugvellir: Tékkaðu þig inn á netinu
Líka flugvellir: Já nei, þú þarft að fara í sömu röð og þeir sem eru ekki búnir að tékka inn
Flugvellir: Vinsamlegast mætið 3 klst fyrir brottför
— siggi mús (@siggimus) June 9, 2018
Líka flugvellir: Já nei, við opnum ekki check in fyrr en 2 klst fyrir brottför
Lífið er svo miklu auðveldara þegar börnin eru orðin stærri og meira sjálfbjarga þegar þau fá gubbupest