Tag: íslenska

  • Það er næstum fyndið hvað ég tækla félagsfælnina miklu betur sem pabbi barnanna minna en sem miðaldra kúkalabbi með ístru

  • Saffran

    svo er fólk að smygla eiturlyfjum og fíkniefnum

  • Dáleiðsla

    Fann vídeó á youtube sem sýnir bara lestir í klukkutíma. Nú eru komnar 25 mínútur og Albert er varla búinn að anda


    Tveimur dögum síðar: 20 mínútur og hann er ekki enn búinn að fatta að þetta er sama vídeóið aftur


    Hér er myndbandið ef þú vilt prófa:

    Lestir bruna í heilan klukkutíma!
  • and-hikstamín!

  • Kötturinn sem gufaði upp

    Ég átti eitt sinn kött sem að gufaði upp,
    já hann hvarf bara svona einn daginn.
    Ég vissi aldrei alveg hvað af honum varð
    en ég sé hann aldrei ganga um bæinn

    Hann átti aldrei trefil, hann átti aldrei skó,
    en hann gaf því alls engar gætur.
    Hann vafði skýi um hálsinn og skelli – skellihló
    og gantaðist úti allar nætur

    Kötturinn sem gufaði upp – Olga Guðrún
  • Ef þú átt barn á leikskóla í Reykjavík færðu svona tölvupóst á hverju sumri.

    Ef þú átt tvö börn á leikskóla í Reykjavík færðu tvo svona tölvupósta á hverju sumri.

  • Það besta við daginn eftir að þú kemur heim úr sumarfríi er auðvitað að börnin eru enn á öðru tímabelti og vakna kl. 5 en ekki 8

  • Þegar þú kemur heim úr fríi og um leið og flugvélin kemur yfir landið sérðu fleiri ský en þú sást á þremur vikum í útlandinu

  • Íslenskt veður

    Þegar veðrið er orðið svona er alveg eins hægt að koma bara heim

  • Það vantar eitthvað

    Það vantar spýtur og það vantar sög
    Það vantar málningu og fjögur lög!

    Olga Guðrún – Það vantar spýtur (í útgáfu barnanna minna)

    Olga Guðrún – Það vantar spýtur

  • Sól

    siggimus elskar sól

  • „að spila tefl“

    Átta ára reynir að kenna mátulega móttækilegri sex ára „að spila tefl“

    „Þegar kóngurinn þinn er dauður drepast allir úr þínu liði“

    Reglurnar

    „Ég kalla þennan skák af því að hann má bara fara á ská!“

    Um biskup

    „Af hverju hopparðu ekki yfir þennan hest?“

    Bendir á peð