Tag: íslenska

  • Auðvitað fer dimmerinn á jólaseríunum hjá Sámi upp í 11 ? ?

  • Semsagt, öll símtöl eru myndsímtöl, en það er neyðarástand af því að lestarvagninn sem kemur með nýju (dans)útgáfuna af Hvolpasporinu fór út af teinunum

  • Telma fékk að koma með mér í vinnuna, sem er mikið fagnaðarefni því hún var búin að heyra miklar sögur af ævintýrunum sem þar gerast – heitt kakó og klemmubrauð eins og þú getur í þig látið! Svo er hægt að spila fúsball.

    Henni fór að leiðast svo ég setti á hana heyrnartól svo hún gæti hlustað á tónlist í símanum mínum án þess að trufla aðra. ?

    Nú situr hún og syngur hástöfum: ?„Ef þú getur ekki sungið reyndu þá að klappa! ef þú getur ekki klappað, reyndu þá að stappa“ ?meðan ég geng áhyggjufullur um og spyr vinnufélagana hvort þau séu ekki örugglega með heyrnartól sjálf ? „Við erum fuglar sem að flögra um! Við finnum alltaf það sem okkur vantar“ ?

  • Mosfell

    með Ferðafélagi barnanna

  • Pabbi: „Jæja stelpur, hvað eigum við að gera skemmtilegt í dag?“

    Sandra: „Þú verður að velja eitt: Annað hvort að borða ís eða fara út í búð að kaupa tyggjó.“

  • Pabbi: „Jæja stelpur, hvað eigum við að gera skemmtilegt í dag?“

    Stelpur: „Þú verður að velja eitt: Annað hvort að borða ís eða fara út í búð að kaupa tyggjó.“

  • Bananar

    Milljón króna hugmynd: Bananar húðaðir í límmiðalími!

  • Atlas

    Landafræðibókin.

    Heimurinn eins og hann leit út fyrir 35 árum. Alvöru doðrantur.

    Eins og 60% jafnaldra minna fékk ég þessa í fermingargjöf

  • Sjö hundur veraldar?

  • Krakkar, það eru litlu hlutirnir sem veita mesta hamingju!

    Eftir að afplána mánuð heima með öllum yndislegu og dásamlegu börnunum mínum var ég rétt í þessu að kveikja á vekjaranum fyrir morgundaginn

  • Börnin mín eru geggjuð og æðisleg og frábær og best í heimi og ég elska þau út af lífinu, en ég byrja að vinna aftur eftir 46 klukkutíma og 41 mínútu

  • Þekkjandi mínar dömur var ég ekkert að flýta mér í sturtunni og klæddi mig í rólegheitum í fötin eftir sund í Klébergslaug. Beið svo dágóða stund fyrir utan kvennaklefann.

    Pabbi: „Ööööö, hvernig gengur þarna inni?“

    Telma: „Bara vel, við erum enn í sturtu! En ég kann núna að flossa!“