Tag: íslenska

  • Þegar þið eruð algjörar ofurhetjur og dröslist upp að steini á Esjunni með þrjú börn, þar af eitt í burðarpoka og berjið ykkur eðlilega á brjóst og eruð í sjöunda himni en farið svo heim og eruð svo búin á því að það er kex í kvöldmatinn

  • Þar sem ég var búinn að kjaga rétt hálfa leið upp á Esjuna með Albert á bakinu gekk ég fram á Mads Mikkelsen sem nikkaði kumpánlega til guttans.

    Ég ætlaði að biðja um selfí en Albert, tveggja ára, krafsaði í hnakkann á mér: „Ekki kúl, gaur. Ekki kúl“

  • Esjan með börnunum

    Við misstum af því að fara með Ferðafélagi barnanna á Esjuna, svo við fórum bara seinna sjálf

    Börnin stóðu sig eins og hetjur

  • Kommon emmess! Lærðuð þið ekkert af Friedman?

    Það er ekkert til sem heitir frí mjólk!


    Uppfært!
  • Þegar rafmagnið fer af í vinnunni og þú situr á eina staðnum sem er ekki með neyðarljós — snyrtingunni

  • Pabbi: „Varstu búinn að sjá að það er kominn snjór efst í Esjuna?“
    Telma (6 ára): „Jaháts pabbi! Fyrir löngu!“

    T hugsi: „Af hverju er bara snjór efst?“
    P: „Af því að það er kaldara svona hátt uppi“
    T: „Já en það er heitt uppi og kalt niðri“
    P: „Það er reyndar alveg rétt hjá þér – heitt loft leitar upp! En það er samt kaldara uppi á fjalli en niðri á jörðinni.“
    T: „Þegar ég er að labba úti er mér kalt á tánum en heitt á búknum“

  • Snjór í Esjunni

    Pabbi: „Sérðu, snjór í Esjunni!“

    Telma (6) hugsi: „Af hverju bara efst?“

    P: „Það er kaldara hátt uppi“

    D: „Já en það er heitt uppi og kalt niðri“

    P: „Rétt hjá þér – heitt loft leitar upp! Það er samt kaldara uppi á fjalli en niðri“

    T: „Mér er kalt á tánum en heitt á búknum!“

  • Nú er kominn 26. september og það hryggir mig að sjá hvað stjórnmálamenn virðast vera áhugalausir um þetta verðuga verkefni

  • Pabbi: „Já, og svo ætlar mamma að reyna að kaupa sona vílís skó fyrir ykkur í útlöndum“

    Sandra (8) öskrar af hlátri í kortér: „Vílís?! Pabbi kjáni! Það á að segja hílís“

  • Sixpakk

    „Pabbi, værir þú með sixpakk ef þú værir ekki með bumbu?“

  • Þegar i-ið er á hvolfi

  • Ástkær eiginkonan skrapp til útlanda í örfáa daga og skildi mig eftir aleinan með öll þrjú börnin.

    Nú er hálftími eftir og við síðustu talningu var ég nokkurn veginn á áætlun með eina markmiðið sem ég setti mér: Við eigum enn jafnmörg börn