Tag: íslenska

  • hver hvað hvenær hvað hví hvá

    (only the cool kids will understand)

  • Áhyggjur

    Þarf ég að hafa áhyggjur af drengnum?

  • Kannist þið við krakka sem að kúr’í sandkassa?
    Þeim leiðist heldur lífið og eru löngu hætt að krassa
    Þau hafa rólað hundrað milljón sinnum út og inn
    og mokað sama sandinum í skóinn sinn

    Olga Guðrún – Það vantar spýtur af Eniga meniga
  • Hefur einhverntímann komið fram hvers konar iðnaðarmaður Godot var?

  • Irusu

    Ég hef slökkt öll ljós og falið mig þegar Vottar Jehóva hringdu dyrabjöllunni.

    Þau gáfust upp eftir ca 20 mínútur


    En þau komu aftur. Þá klæddi ég mig upp og fór út. Bara eitthvað. Keyrði í hringi. Þorði ekki heim fyrr en eftir rúman klukkutíma


  • Í hartnær tvo mánuði tókst mér ekki að fá gólfhitann til að flytja neinn hita í svefnherbergin tvö á efri hæðinni. Það varð oft soldið kalt, en slapp samt til, og verandi frestari par exelans hummaði ég það fram af mér — þangað til Albert varð veikur í kuldakastinu um daginn — þá réðist ég með blóti og formælingum á „flækjuna“ og djöflaðist í henni þangað til loksins eitthvað gerðist

    Nema hvað, Albert batnaði og kuldakastið breyttist í hlýindakast

    Í gærkvöldi sat ég á stuttermabol við opinn gluggann, las fyrir Albert fyrir svefninn og það bogaði af mér svitinn


  • Sexkantur?

    Eru Neytendasamtökin á forritinu?

    Ég keyrði tugi kílómetra, gekk tugi kílómetra í IKEA og keypti fyrir tugi þúsunda, en það var EKKI EINN EINASTI SEXKANTUR

  • Borgaði konu hundrað þúsund krónur fyrir að þurfa aldrei að tala við hana aftur

    aka afsal

  • Dring

    Satan: „Góðan daginn, Kristófer heiti ég hjá Tryggingar og ráðgjöf, má ég ræða við þig um líf- og sjúkdómatryggingar?“

    Ég: „Já, ef þú getur svarað einni spurningu fyrst“

    S: „Eeeee … já?“

    É: „Máttu hringja í fólk sem er x-merkt í símaskránni?“

    S: „Jaaa… hérna … þú … ég er ekki … öööö“

    … þrjár mínútur …

    Dring dring

    Satan: „Góðan daginn, Kristófer heiti ég hjá Tryggingar og ráðgjöf, má ég ræða við þig um líf- og sjúkdómatryggingar?“

  • Uppvakningur

    lyftir sér á kreik

  • Þegar þú ert frestari dauðans og hefur >1x & >2x fengið sekt fyrir að þú koma ekki tímanlega með bílinn í skoðun, en tekst svo á einhvern óskiljanlegan hátt að mæta með bílinn daginn áður en þú færð sekt og finnst eins og þú hafir sigrað lífið …

    nema gaurinn á skoðunarstöðinni verður kindarlegur þegar hann slær inn bílnúmerið og segir „Öööö — þessi gaur“ og bendir ásakandi á félaga sinn — „sko, þessi hérna gaur setti vitlausan miða á bílinn þinn í fyrra! Þú þarft ekki að koma fyrr en á næsta ári“

    …og ég barasta get ekki ákveðið hvort þetta er gott eða slæmt fyrir frestarann í mér…

  • Eftir að hafa verið með á bilinu 985-997 í þrjú hundruð ár ár vil ég bara segja að ég hélt það kæmi lúðrasveit