Tag: íslenska

  • 17. sep. ’18:

    Ég: Hringi í verktaka, bið um tilboð í viðhald, líklega > 1,5 milljón.

    Verktaki: Það er form á vefnum hjá mér.

    Ég: Fylli út form

    28. nóv. ’18:

    Verktaki: „Þetta gæti verið mögulegt með vori eða sumri.“

    4. mar. ’21:

    Ég: „Takk“

  • Piparkökuhús og jólaföndur

  • Þegar skalinn dugar ekki lengur:

    Gul viðvörun, appelsínugul, rauð, og…

  • ALDREI AFTUR!

    ifil bbúlgroz!

  • Fyrir ketti

    „Þú veist að þetta er fyrir ketti?“ sagði afgreiðslustúlkan við fólkið fyrir framan mig í röðinni í Krónunni

    Ég reyndi að flissa ekki

  • Aðeins of mikið

    Hverjar eru líkurnar á að ég hafi óvart tekið aðeins of mikið af sýru?

  • Pabbi: „Sjáið stelpur hvað tunglið er stórt og fallegt, beint yfir Snæfellsjökli!“

    Sandra: „Hvað er Snæfellsjökull margar Hallgrímskirkjur?“

    P: „Veit ekki“

    S: „En Everest?“

    P, sem var á málabraut: „Ööööö, meira en hundrað!“

    S: „Telma! Everest er meira en hundrað Hallgrímskirkjur!“

    T *skilur ekkert* ?: „Everest er hundur!“

  • Hestur

    Í bíltúr barst talið að fjöllum og nöfnum á þeim.

    Telma: „Ég veit hvað væri hægt að kalla brúnt fjall“

    Pabbi: „Já? Hvað?“

    T: „Hestur!“


    P: „Eru allir hestar brúnir?“

    T: „Já“

    P: „Aaalveg allir?“

    Sandra: ? „Ekki Diskó“

    T: „Ekki heldur Móa“ ?


    P: „En allir hinir?“

    T: „Ööööö … já?“

    P: „En veistu, það er til fjall sem heitir Hestur!“

    T: „Af hverju?“ ?

    P: „Ég veit ekki, kannski var það brúnt?“

    [aths ritstj: Diskó og Móa voru hestar dætranna á reiðnámskeiði í sumar]

  • Ég hef tvisvar fengið tilkynningu um andlát náins ættingja í gegnum síma: afi hringdi vegna ömmu og systir mín þegar mamma dó.

    Var að fatta núna — 20 árum / 5 árum síðar — að í bæði skiptin kvaddi ég með „Takk fyrir að láta vita“

  • Gleymdi að það væri dótadagur á leikskólanum hjá pjakknum í dag

    Nú veit ég hvernig kúk líður

  • Skínasta stjarnan

    „Sérðu allar stjörnurnar pabbi!“ sagði Telma uppnumin og horfði beint upp í himininn. „Hver er skínasta stjarnan?“

    Við vorum sammála um að Venus hefði verið „skínasta“ stjarnan á himninum í morgun, og þess vegna væri hún óskastjarnan í dag.

    Stelpurnar horfðu á Venus og óskuðu sér í hljóði.