Spáið í að heita bara Þrándur — eins og það sé alvöru nafn
Tag: íslenska
-
-
„Það ætti að kalla þetta Jólabandssælu í desember“
-Sandra, átta ára
-
En hérna… áttu eitthvað fyrir Power Point?
Excel gloves -
Fyrsti bíllinn
Minning um Mitsubishi Colt ’83
Í minnsta lagi fyrir stóran og hávaxinn mann. Iðulega þegar ég skipti um gír kveikti ég á stefnuljósinu til hægri
Mitsubishi Colt ’83. Samskonar bíll og var fyrsti bíllinn minn Þetta er samt mynd af netinu. Enginn lúxus eins og topplúga í mínum. Ég lét hausinn bara hvíla á öxlinni meðan ég rúntaði um…
-
ööööö, hvert snýr maður sér ef maður vill á gamals aldri nema þá frómu list að snýta sér? er námskeið eða kannski bara jútúb?
-
Pabbi reynir að lesa Madditt fyrir háttinn.
Telma (næstum 7): „Pabbi, hvað ef fyrsta manneskjan sem fæddist var strákur?“
Pabbi: „Góð spurning! En hvernig fæddist fyrsta manneskjan?“
T: „Sko, fyrst var sandur, sem breyttist í stein og svo pöddu og svo mús og svo fisk og svo kom api og svo breyttist hann í mannfólk!“
-
Þegar þú ert búinn að eyða 70 kúlum í reykskynjara og langar næstum pínulítið til að það kvikni í til að fá eitthvað fyrir peninginn
Reykskynjarar fyrir 70 þúsund -
Metnaðurinn í sögulegu lágmarki
Brio – ekki lengsta lestarspor sem sést hefur -
Það langversta við að vera fullorðinn karlmaður er að þurfa reglulega að fara í gegnum svona hrúgu og flokka svarta sokka, sem allir líta eins út — þar til þú stígur út úr húsi
Hrúga af svörtum sokkum sem allir líta nákvæmlega eins út – þar til þú stígur út úr húsi -
Mér reiknast til að þetta gums hafi stytt dvöl mína í helvíti um allt að tvo daga eftir heiftarlega magakveisu fyrir nokkrum dögum.
Af hverju er ég fyrst að uppgötva þetta núna, á gamals aldri?
Gatorade – guðaveigar eftir veikindi, sérstaklega magakveisu -
Stelpurnar fá næstum aldrei tyggjó og finnst það merkilegra en gull.
Í morgun laumaði afi þeirra að þeim tyggjói þegar enginn sá til.
Rúmum tveimur tímum síðar er Telma ekki búin að fá sér morgunmat því hún tímir ekki að henda tyggjóinu
-
Þegar ég skoða snörupúnkturis til að reyna að finna bestu orðin til að lýsa óhljóðunum sem heyrast þegar ég hósta koma helst til greina orðin hrygla, hrygluhljóð, hrygluhósti og snörgl
Og nú er ég sannfærður um að ég muni deyja úr hryglu og/eða snörgli