Vinnufélagi fyrir nokkrum árum: „Hey! Ég verð í Andri á flandri í kvöld!“
Ég: „Ööö, hérna … þú veist að Andri Freyr talar aldrei við…“ *hmmm, hvaða orð er nú best að nota* „…eðlilegt fólk..?“
Meðan önnur börn horfa á ógeðsleg og kolsúr vídeó á jútjúb drekkur 8 ára dóttir mín í sig allskonar lifehack og howto vídeó eins og hún sé risastór svampur
Svo sest hún við og býr til liti fyrir Barbí

Meðan önnur börn horfa á ógeðsleg og kolsúr vídeó á jútjúb drekkur 8 ára dóttir mín í sig allskonar lifehack og howto vídeó
— siggi mús (@siggimus) January 6, 2019
Svo sest hún við og býr hún til liti fyrir Barbí ??#pabbatwitter pic.twitter.com/GLSFZZtZzh
Skv. grein sem ég las er best að gera svona og vera ákveðinn. Nei þýðir nei!
Ooooo, hvernig get ég sagt nei við svona mikla dúllu og rúsínurassgat!?!
Hmmmmm, hvernig stendur á því að hann er svona mikil frekja?!?
Í gærkvöldi horfðu stelpurnar á „fjölskyldumyndina“ Sumarbörn á Rúv.
Í kvöld ætlum við að reyna að finna eitthvað álíka skemmtilegt, t.d. að láta róna gera á þeim rótarfyllingu
Börn elska að hvolfa úr dótakössum á gólfið, svo það eru tómir dótakassar um alla íbúð svo það sé fljótlegra að taka til þegar börnin hvolfa úr dótakössum á gólfið
Þegar öskrin og lætin á efri hæðinni þagna allt í einu en þú þorir ekki upp að tékka hvort stelpurnar hafi leyft litla bróður að vera með í leiknum eða drepið hann