Pabbi: „Hvaða lag heldurðu að vinni í kvöld?“
Sandra: „Reykjavíkurdætur“
Albert: „En þær segja ljótt!“
Pa:
A: „Bits!“
Pabbi: „Hvaða lag heldurðu að vinni í kvöld?“
Sandra: „Reykjavíkurdætur“
Albert: „En þær segja ljótt!“
Pa:
A: „Bits!“
Albert: „Hvað heitir þetta lag?“
Pabbi: „Fallen angel“
A: „Er neindjel svona eins og nindja?“
Sandra, næstum 11 ára, um frönsku söngkonuna: „Einn fjörutíu og sjö?! ÉG er stærri en það! Hún má ekki einusinni sitja frammí í bíl“
Albert (þriggja í sumar) verður æ frústreraðri með hverju laginu sem byrjar að LAGIÐ kemur ekki: „Núna Hati sirra?“
„Af hverju kemur Björk aldrei?“
Sandra: „Þegar hún syngur lagið í alvörunni segir hún efforðið, en í Júróvissjón segir hún bara stúpid bits. ööö ? nei, stúpid boj“
Telma meltir þetta aðeins
Sandra: „Stúpid boj þýðir kjánastrákur“
Systur sperra eyrun og hlusta mjöööööööög vandlega á textann.
Sandra: „Heyrðirðu? Hún sagði maðafokka bits!“
10 mínútum síðar heyrist í Telmu raula „maðafakka bits! ? maðafakka bits! ? maðafakka bits! ?“
Barn: „Var Prumpulagið í Eurovision?“
Pabbi: „Nei, því miður“
Ég er með hugmynd! Byrjum útsendinguna frá Söngvakeppninni á tveggja mínútna auglýsingu fyrir Söngvakeppnina
Sandra veltist um gólfið af hlátri þegar Heimilistónar byrjuðu „Fyndnasta lag í heimi“
Telma, 5 ára, syngur:
Viltu fá banaa-ana?
Þú mátt alveg fá banana
Þeir eru svo gulir og hollir
Telma: „Kannski kemur þetta í Eurovision“
hér í útlandinu er klukkan orðin drullumargt, eurovision búið og tími til að skríða í koju
[spoiler alert!!] ekki lesa lengra nema þú viljir vita úrslitin…
rússland, tyrkland og svíþjóð. ísland var samt í topp 10
neisko! þessi líka fína vondutextakeppni í sjónvarpinu.
ekki auðvelt að velja milli
ef ég hefði vængi,
eitthvað leirskáld
flygi ég í myrkrinu til þín
ég skýjamúrinn klíf,
til að eiga með þér líf
eða
þetta er lagið okkar
eitthvað annað leirskáld
lagað handa þér
eins og kaffibollinn er