Ég elska konuna mína mjög mikið og sakna hennar þegar hún er ekki nálægt, en ég sakna konunnar minnar aldrei eins mikið og þegar hún skilur mig einan eftir með börnin þrjú
Tag: Ance
-
Sandra sá mömmu skrifa tengiskrift. Það gengur ekki.
Gerði verkefni sem mamma þarf að skila á morgun

Skriftarverkefni fyrir mömmu -
„Sko, mér til varnar var Albert [hálfs árs] orðinn pirraður áður en ég setti sundgleraugun á hann!“
-
Ég: „Sjáðu hvað er fyndið þegar ég skoppa þessum bolta á hausnum á hálfs árs syni okkar!“
Ance: „…“
-
Í nótt var Ance á (gluggalausu) baðherberginu að skipta um bleyju. Hún rétt náði að sjá bingóvinninginn áður en rafmagnið fór
-
Pabbi og mamma

Sandra teiknaði mynd af pabba og mömmu -
Gúrka!
Pínulítil!

Gúrka, pínulítil
Ekki pínulítil!

Gúrka, ekki pínulítil -
Þegar þú ert kominn langleiðina í vinnuna (19 km af 28) og konan hringir af því hún er læst úti
-
Ostur
Ance heyrði í Telmu inni í herbergi, flissandi bakvið hurð. Kom að henni nagandi oststykki.
Réttra fjegurra vetra og orðin föðurbetrungur!
Exhibit A:

Ostur, nagaður. Tannaförin augljóslega eftir Telmu -
Palli
Í gær kom snjókarlinn Palli í heimsókn og hjálpaði okkur að skreyta húsið að utan

Snjókarlinn Palli 
Telma, Palli og Sandra 
Ance, hjarta, Telma og Sandra 
Palli, Telma, Sandra og húsið okkar
Uppfært fjórum dögum síðar:
Palli farinn að láta á sjá. þurfti smá fegrunaraðgerð, m.a. nýtt auga + nýtt nef

Það sem eftir lifir af snjókarlinum Palla -
Þverfellshorn
Héldum upp á barnlausan dag með því að klífa Þverfellshorn – sem er fyrir ofan Stein.
Celebrated a childless day with a hike to Þverfellshorn – the top of mount Esja



-
Sigling

Stelpurnar athuga hvort vatnið sé öruggt 
Öll á siglingu 
Útsýnið 
Tilbúin að leggja í hann 
Báturinn tilbúinn 
Telma skoðar umhverfið 

Sandra fann blóm 
Áin 
Gott að fá sér nesti eftir erfiðið